Ný viðbygging með 6 tveggja manna herbergjum, öll með sérbaðherbergi hefurverið tekin í notkun.Einnig eru tvö 2ja manna herbergi með sameiginlegu baðherbergi í aðalbyggingunni. Stór og góður heitur pottur er við húsið þar sem hægt er að njóta geysilega fagurs útsýnis.
Sérstaklega notalegt gestahús þar sem í boði er gisting í fjórum 2ja manna herbergjum (þar af tvö með sérsnyrtingu), ásamt baðstofulofti þar sem allt að 12 manns geta gist. Þannig geta alls 20 manns gist í Gestahúsinu okkar á sama tíma. Einnig er heitur pottur við húsið, ásamt útigrilli. Fyrir hópa bjóðum við uppá að fá nuddara og/eða jógakennara á staðinn.
Að auki bjóðum við uppá huggulegt baðstofuloft á braggaloftinu þar sem allt að 18 manns geta gist, með sameiginlegum snyrtingum og sturtuaðstöðu, mjög heppilegt fyrir stærri hópa sem vilja notalega stemmingu.
Upplýsingar um verð og fleira eru fúslega veittar í síma: 487-6666 og hestheimar@hestheimar.is.
Bjóðum upp á hlaðborð fyrir smærri og stærri hópa , þar sem allt brauð og kökur eru heimabakaðar. Heimilislegur matur og hlýlegt andrúmsloft er í fyrirrúmi. Veitingarnar framreiddar í notalegum veitingasal þar sem útsýnið svíkur engan ! Hekla og Tindfjalla-, Mýrdals- og Eyjafjallajökull blasa við út um gluggana á veitingasalnum okkar.Einnig má sjá Trippafjöll og Þríhyrning.
Það er ekta sveitastemming í veitingasalnum við reiðhöllina þar sem gestir okkar snæða og geta svo tekið sporið í reiðhöllinni á eftir. Bjóðum upp á hljómsveit, trúbadora eða harmónikkuleikara, allt eftir því hvað þú vilt!
Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing.
Hafðu endilega samband í síma : 487-6666 eða hestheimar@hestheimar.is !