|
2010-09-01 -
Áður en sölusýning hefst, kl. 13:30 , verður Guðmar dýralæknir í Sandhólaferju með áhugaverðan fyrirlestur, ókeypis aðgangur.
Fjöldi glæsilegra hesta verður sýndur og von á fjölda gesta, rífandi stemming !
Skráningargjald er 3.500 á hvern hest. Nánari upplýsingar og skráningar : thoranna21@hotmail.com og 869-4354
Kaffiveitingar til sölu í ... Lesa meira
|
|
2010-08-26 -
Við finnum tíma sem hentar þér !
Það voru 8 konur sem mættu á helgarreiðnámskeið fyrir Prinsessur í Hestheimum 22.-24. janúar s.l.
Þær komu frá öllum landsfjórðungum og einnig frá Danmörku.
Tekið var á móti þeim með gjöfum, kertaljósum, freyðivíni og súkkulaðihúðum jarðarberjum og fleira góðgæti.
Dekrað var ... Lesa meira
|
|
2010-08-22 -
Þrátt fyrir bankahrun, eldgos og hestapest hefur allt verið troðfullt hér í Hestheimum í sumar.Oft hefði verið gott að hafa fleiri herbergi, þó að við komum 50 manns fyrir í gistingu hér í Hestheimum. Við fórum í 4 vikulangar hestaferðir, ásamt styttri túrum. Veitingahúsið var þéttsetið öll kvöld, mikil stemming ... Lesa meira
|
|
2010-08-22 -
Hestheimafjölskyldan flutt í Gestahúsið , búin að gista eina nótt og fara í heita pottinn og slaka á ! Voða notalegt að búa hér, ... þar til nýja húsið á hæðinni verður tilbúið ! Erum með úrvals menn í því : Jón (Jón) Magnússon arkítekt sem býr í Noregi og ... Lesa meira
|
|
2010-08-19 -
Hestheimar bjóða uppá 3ja daga dekurferð fyrir frábærar konur 27.- 29. ágúst 2010.
Verð kr. 79.000,- Innifalið er allt þetta:
• Úrval góðra hesta og frábær aðstaða
• Léttleikandi leiðsögn
• Reiðtygi, hjálmar og regnfatnaður
• Gisting í 2ja manna herbergjum með ... Lesa meira
|
|
2010-08-16 -
Þetta eru mjög vinsæl helgarnámskeið sem hafa verið haldin í Hestheimum í 3 ár og alltaf uppselt á þau. Mjög gott úrval er af hestum fyrir nemendur. Einnig má koma með eigin hest.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er:
• Gisting í uppábúnum rúmum í 2 nætur
• Hestur og ... Lesa meira
|
|
2010-08-15 -
Bókun er hafin fyrir veturinn! Það eru hressir og skemmtilegir hópar sem koma í hvata- og óvissuferðir í Hestheima. Við bjóðum uppá línudans fyrir grillmatinn gómsæta, sveitasæluskot og lifandi tónlist. Það er hinn stórsnjalli línudanskennari Jón Þór frá Selfossi sem kennir réttu kúrekasporin.)
Verið öll hjartanlega ... Lesa meira
|
|
2010-07-28 -
Við erum hæstánægð með skráninguna á vikureiðnámskeiðin hjá okkur í sumar eins og áður: uppselt og búið að bóka nokkur pláss fyrir næsta ár :) Frábært hvað margir krakkar vilja koma til okkar ár eftir ár, þetta eru svo flottir og skemmtilegir krakkar. Hittumst fersk í Hestheimum í ágúst, kæru ... Lesa meira
|
|
2010-07-04 -
Hvaða væntingar gerði gestur sér til gististaðarins og fór gististaðurinn fram úr þeim væntingum og þá hverning:
staðurinn fór á allan hátt fram úr björtustu vonum - maður bjóst ekki við þessu dásamlega útsýni, maturinn einfaldlega frábær á sanngjörnu verði, mjög vinaleg og afslöppuð þjónusta, ... Lesa meira
|
|
2010-07-03 -
Hello,
I'm writing to thank you for a great trip to Iceland! My group of four returned last night from our eight-day stay and we had a lovely time in your country.
We particularly loved the Hestheimer Farm. They offered very pleasant accommodations and gracious hosts. ... Lesa meira
|
|
2010-06-21 -
Stofnað hefur verið háalvarlegt félag um mesta stóðhest Íslandssögunnar .)
1. Félagið hefur hlotið nafnið: Skjálftafélagið ehf. Aðaleign félagsins er: Skjálfti, IS 2009186565, faðir: Glotti frá Sveinatungu, móðir: Gæfa frá Kálfholti, Ásahreppi.
2 .Eigendur eru:Ísleifur Jónasson, Lea Helga Ólafsdóttir, Marteinn Hjaltested, Ingibjörg Geirsdóttir, Jóhann Baldursson, Helga Sigurhannsdóttir ... Lesa meira
|
|
2010-06-21 -
Við tókum á móti tæplega 40 áhugasömum þýskum bændum í Hestheimum í dag. Þeir fengu sér kaffisopa og fylgdust einbeittir með fróðlegri reiðsýningu þar sem lögð var á gangtegundir íslenska hestsins. Það var Birgitta leiðsögumaður sem fór fyrir hópnum á vegum Ferðaþjónustu bænda.
Takk kærlega fyrir ánægjulega heimsókn, velkomin aftur. ... Lesa meira
|
|
2010-06-12 -
Það var skemmtilegt að fá svona marga prúða unglinga í gistingu og morgunverð hingað í Hestheima. Það hafa aldrei fleiri unglingar komið til okkar og var gaman að sjá hversu vel þeir gengu um og voru kurteisir.
Takk fyrir góðar stundir, velkomin aftur í Hestheima !
Lea ... Lesa meira
|
|
2010-06-03 -
Hér hafa verið og eru væntanlegir margir hópar af 10.bekkingum að fagna próflokum. Unglingarnir hafa gist hér í Hestheimum og snætt morgun - og kvöldverð. Alls verða þeir á 3ja hundrað hér í Hestheimum og eru hið besta fólk: kurteis og elskuleg . Takk fyrir komuna :) Lesa meira
|
|
2010-06-03 -
Búið að leiða 2 hryssur þetta árið: Dáð frá Dalbæ fór undir Fróða frá Staðartungu og Blíða ( Álfadís) frá Flagbjarnarholti fór undir Spóa frá Hrólfsstaðarhelli. Það verður spennandi að sjá litasamsetningu þessara folalda næsta sumar .) Lesa meira
|
|
2010-06-03 -
Tvö af þremur börnum í Hestheimum hafa lokið skólagöngu þetta skólaár með glæsibrag: úrvals einkunnir bæði hjá Sunnevu Eik og Hákoni Snæ, bæði í Laugalandsskóla. Ísak Freyr , sem er í Vatnsendaskóla fær sínar einkunnir næsta miðvikudag úr 10. Bekk. Framundan eru bæði afslappaðir og fjörugir sumardagar hjá systkinunum, ... Lesa meira
|
|
2010-05-28 -
Kynningarfundir um Ísland í tengslum við markaðsátakið Inspired by Iceland verða haldnir á helstu markaðssvæðum ferðaþjónustunnar í Evrópu í þessari viku. Fundirnir verða fyrir erlenda blaðamenn og ferðaþjónustuaðila í Mílanó, Barcelona, Frankfurt, París, Amsterdam, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og í Osló. Gert er ráð fyrir fundum í Bandaríkjunum í framhaldinu.
Á ... Lesa meira
|
|
2010-05-28 -
Það voru spennandi stundir hér í Hestheimum í gærkvöldi og fram á nótt. Tvö ný Gestahús voru flutt af mikilli fagmennsku Já verktaka úr Kópavogi í Hestheima. Umsjón með flutningnum var í öruggum og fumlausum höndum Guðjóns Árnsonar og Egils starfsmanns hans. ÞREFALLT HÚRRA FYRIR YKKUR ÖLLUM ! Lesa meira
|
|
2010-05-28 -
Þegar tvö 35 fermetra hús eru flutt um Suðurlandið er að mörgu að hyggja, þau þurftu lögreglufylgd og einnig þurfti að fjarlægja Hestheimafánana tímabundið út við þjóðveg 1 svo bílarnir kæmust í gegn um hliðið. Allt fór þó vel og nú eru nýju húsin sannkölluð staðarprýði og afar ... Lesa meira
|
|
2010-05-28 -
Það er hress kvennahópur sem hefur spriklað í sundleikfimi hjá Guðna á Laugarlandi. Í seinasta timanum hentum við auðvitað sundkennaranum útí laugina í öllum fötum ! Í sárabætur buðum við honum uppá Grand Marníer , ostapinna og fleira gott í heita pottinum. Einhverra hluta vegna afþakkaði Guðni þetta ... Lesa meira
|
|
2010-05-28 -
Það er alltaf líf og fjör í sveitinni fögru .) Lesa meira
|
|
2010-05-17 -
Þau eru afar vel hönnuð nýju gestahúsin hér í Hestheimum, reyndar svo vel að fleiri ferðaþjónustuaðilar vilja byggja svona hús.) Smáhýsi er reyndar rangnefni, því þau eru 30 fermetrar nettó, með alrými, eldhúskrók og rúmgóðu baði. Við erum spennt að fá þau á staðinn og að geta hafist handa við ... Lesa meira
|
|
2010-05-17 -
Við vorum með 2 hressa 20 manna hópa í hestaleigu og annan þeirra líka í BBQ veislu á laugardaginn. Um kvöldið fengum við svo sænskan hestamannahóp sem gisti hjá okkur og snæddi morgunverð....
Alltaf nóg að gera í Hestheimum, líf og fjör .) Lesa meira
|
|
2010-05-17 -
Við erum auðvitað ánægð með að hestapestin er í rénun hjá okkur, enda aðalannatíminn að fara í hönd. Íslenski hesturinn er jaxl, en vonandi fáum við ekki aðra pest í hrossastofninn á Íslandi, þetta hefur gert hestafólki mikla skráveifu.
ÁFRAM ÍSLENSKI HESTURINN ! Lesa meira
|
|
2010-05-14 -
Þar kom að því ! Við hér í Hestheimum og nágrenni fengum öskufall í nótt. Grá slikja á öllu en svo hætti það í morgun. Hugur okkar er hjá þeim sem eru austar en Hestheimar og hafa fengið að finna óþyrmilega fyrir öskunni. Vonandi lýkur þessu ... Lesa meira
|
|
2010-05-13 -
Við eigum örfá sæti laus á ágústreiðnámskeiðið, en það er uppselt í júni !Sama verð í 3 ár, fullt fæði, reiðkennsla og gisting :)
Að hika er sama og tapa ! Um að gera að panta strax !
Reiðnámskeið í Hestheimum fyrir ... Lesa meira
|
|
2010-05-11 -
Við eignuðumst gullfallega, rauða og vindhærða hryssu í dag undan Dáð frá Dalbæ og Sæ frá Bakkakoti. Hún fekk nafnið Snilld,þannig að klárlega eru miklar væntingar bundnar við þetta merfolald .)
Þetta eru fyrsta folaldið þetta árið og nú bíðum við spennt eftir hinum 7 :) Lesa meira
|
|
2010-05-11 -
Allt að smella í nýju smáhýsunum okkar: fer á morgun að kaupa eldhúsinnréttingar, velja ísskápa, eldavélar og margt fleira.
Enda snilldarsmiður sem sér um að byggja þá: Guðjón Árnason, sem á GÁ byggingar. Langskemmtilegasti hlutinn , fyrir utan að teikna húsin .) Lesa meira
|
|
2010-05-10 -
Þau sem duttu í lukkupottinn í Hestheimaleiknum í Perlunni síðustu helgi voru:
1. Gerður Bolladóttir, Sigtúni 41, Rvk. Hún vann eitt pláss á vikureiðnámskeiði fyrir börn hér í Hestheimum í júní eða ágúst 2010. Verðmæti vinningsins er : 50.000,-
2. Hjalti Pétursson, Álfatúni 6, Kópavogi. Hann ... Lesa meira
|
|
2010-05-10 -
Veðrið leikur við okkur hér í 'Asahreppnum, eða sólskinshreppnum svokallaða :) Klukkan 14:00 mætir vaskur hópur hrossaræktenda í fordrykk í Hestheimum. Síðan verður farið í rútuferð og valin ræktunarbú heimsótt. Allt er þetta undir styrkri stjórn Jakobs Sigurðssonar sem á Sundhesta efh. hér í Ásahreppi. Kvöldverðurinn verður svo ... Lesa meira
|
|
2010-05-09 -
Það voru ríflega 50 unglingar úr Kársnesskóla sem gistu hér í Hestheimum. Þau fengu aðstöðuna í reiðhöllinni og veitingarýminu lánaða fyrir kvöldvökuna, fóru í heita pottinn og höfðu það notalegt. Í morgunverð fengu þau nýbakað, ilmandi Hestheimabrauð og heimabakað rúgbrauð, ásamt morgunkorni og súrmjólk. Voru unglingar og fullorðna fólkið ... Lesa meira
|
|
2010-05-06 -
Tímonía gaut 4 fögrum kettlingum 11. apríl. Tveir voru þegar pantaðir en 2 leita að frábærum heimilum. Þetta eru 3 læður og 1 högni, öll loðin og litfögur og kelirófur.
Upplýsingar : hestheimar@hestheimar.is
Lesa meira
|
|
2010-05-06 -
Það var mikil aðsókn að Hestheimabásnum alla helgina og yfir 2.000 manns sem fengu að smakka á grafna hrossakjötinu með bláberja- eða sinnepssósu.Lea Helga og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir sáu um allar kynningarnar, t.d. á vikureiðnámskeiðum barna, hestarferðum, Prinsessuhelgum, gistimöguleikum í Hestheimum og fleira og fleira .9
takk fyrir ... Lesa meira
|
|
2010-05-06 -
Lesa meira
|
|
2010-05-03 -
Kæru foreldrar, forráðamenn og nemendur í Reiðskóla Hestheima.
Kvefpestin skæða hefur gert Hestheimahestunum lífið leitt.
Hún herjar á velflesta okkar hesta og er okkur því nauðugur einn kostur að aflýsa öllum tímum í Reiðskóla Hestheima í maí. Reiðskólinn fer svo í sumarfrí.
Við biðjumst innilega ... Lesa meira
|
|
2010-04-30 -
Hestheimar verða með kynningu á gröfnu hrossakjöti og auðvitað allri starfseminni hér alla helgina í Perlunni. Prinsessunámskeið, vikureiðnámskeið barna, lengri hestaferðir, helgardekur, námskeið fyrir hræddar konur og margt fleira .) Komið og hittið okkur á Íslandsperlum, hjartanlega velkomin .)
Lesa meira
|
|
2010-04-24 -
Sumarið 2010 verður aldeilis frábært :) Það er sífelld aukning í bókunum og fullt meira og minna hjá okkur í allt sumar,þrátt fyrir að við séum enn að bæta við gistinguna. Tvö ný smáhýsi verða tekin í notkun í júní. Auk þeirra bjóðum við uppá 12 tveggja manna ... Lesa meira
|
|
2010-04-21 -
Hér er mikil gleði,þar sem hún Tímonía okkar gaut 5 fögrum kettlingum í gær: 2 læðum og 3 högnum. Þegar er búið að taka frá kettlinga, þannig að þeir sem hafa áhuga á að eignast fagran, loðinn og ljúfan kettling þurfa að hafa samband við okkur sem allra fyrst ... Lesa meira
|
|
2010-04-20 -
Það gleður okkur og yljar um hjartarætur að fá daglega fjölda pósta þar sem vinir og gestir okkar eru að leita frétta af okkur. Þeir eru áhyggjufullir vegna eldgossins og halda að hér í Hestheimum sé allt á kafi í ösku. Það er okkur því ljúft og skylt ... Lesa meira
|
|
2010-04-20 -
Á næstunni eru 2 folöld væntaleg í heiminn: undan Dáð frá Dalbæ og Sæ og undan Blíðu frá Flagbarnarholti og Fróða frá Staðartungu. Einnig er von á folöldum undan þessum stóðhestum:
- Glampi frá Vatnsleysu
- Ómur frá Kvistum
- Þytur frá Efra-Seli
- Heimir frá Holtsmúla
og ... Lesa meira
|
|
2010-04-08 -
Heilir og sælir kæru foreldrar og forráðamenn nemenda, svo og nemendur í Reiðskóla Hestheima .)
Nú fer Reiðskóli Hestheima í sumarfrí frá og með 15. Maí 2010. Að sumarfríi loknu verður Reiðskólinn rekinn með breyttu sniði.
Þeir sem eiga eftir ónýtta tíma þegar sumarfríið hefst ... Lesa meira
|
|
2010-04-06 -
Við mætum endurnærð með bros á vör í Reiðskóla Hestheima á morgun, miðvikudaginn 7. apríl og hefst kennslan skv. stundaskrá.
Enn er hægt að bæta við nemendum í alla tíma, Knapamerkin og Pollatímana, svo dæmi séu tekin .)
Verið öll hjartanlega velkomin í Reiðskóla Hestheima .) Lesa meira
|
|
2010-04-04 -
Ísak Freyr var svo heppinn að fá að fara með Heiðari og Höllu, vinafólki okkar, uppá Mýrdalsjökull seint í gærkvöldi. Þetta var mögnuð upplifun og hann náði mörgum frábærum myndum af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. .. Lesa meira
|
|
2010-04-04 -
Fórum í heita pottinn í gærkvöldi... aldrei vitað neitt jafn flott: dansandi norðurljós, stjörnubjartur himinn og eldgosið, allt í beinni úr heita pottinum í Hestheimum. Geri aðrir betur ! :) Lesa meira
|
|
2010-04-03 -
Fjölskyldan í Hestheimum óskar öllum vinum og vandamönnum gleðilegra páska .)
Njótið þess að vera í fríi og slaka á...
Kær kveðja frá fjölskyldunni í Hestheimum. Lesa meira
|
|
2010-04-02 -
Það hefur verið gaman að kynnast hinni frábæru, þýsku Kohlmeyer fjölskyldu sem hefur dvalist í Hestheimum þessa viku. Þau hafa farið í útreiðartúra daglega, skoðunarferðir, þ.á.m. að kvöldlagi að gosinu og margt fleira. Góða ferð heim til Þýskalands og verið hjartanlega velkomin aftur í Hestheima .) Lesa meira
|
|
2010-04-02 -
Við vorum svo lánsöm að fá lánaða 5 fagra páskaunga hjá Fanneyju vinkonu okkar í Einholti. Einn var næstum dáinn í gær, en Sunneva hjúkraði honum til fullrar heilsu .) Takk fyrir Fanney .) Lesa meira
|
|
2010-03-30 -
Það er alltaf líf og fjör í Hestheimum og nóg að gera. Þessa vikuna erum við með frábæran hóp af þýskum hestamönnum sem dveljast hér við útreiðar, göngutúra og skoðunarferðir. Einnig er ætíð nóg að gera í matarhópum og hestaleigunni, hæ og hó og hamagangur á Hóli .) ... Lesa meira
|
|
2010-03-30 -
Það er frábært tækifæri til að hitta vini og ættingja að fara í fermingarveislur .) Við erum svo lánsöm að vera boðin í margar veislur og á Skírdag erum við í skírn (!) og fermingarveislu sama daginn, önnur í Mosfellsbæ og hin í Hafnarfirði. Vonandi rætist veðurspáin og allir ... Lesa meira
|
|
2010-03-30 -
Það verður kennt skv. stundaskrá miðvikudaginn 31.3. en frí á Skírdag. Kennsla hefst að nýju skv. stundaskrá að Páskafríinu loknu.
GLEÐILEGA PÁSKA .) Lesa meira
|
|
2010-03-29 -
Hestheimar bjóða uppá herbergi með eldfjallaútsýni ! Einnig hestaferðir, fullt fæði, reiðkennslu og margt fleira.
Það er mikill áhugi meðal erlendra gesta á eldgosinu og ánægja með að sjá gosið svo vel frá Hestheimum. Í dag kemur til okkar belgískur hópur sem verður hér í vikudvöl í góðu yfirlæti: reiðkennnlu ... Lesa meira
|
|
2010-03-28 -
Eigendur Hestheima, Marteinn og Leu gengu á Þórólfsfellið laugardaginn 27. mars. Fellið er í aðeins 50 mínútna akstursfjarlægð frá Hestheimum. Þórólfsfellið er 875 metra hátt og er þægileg ganga í um 50 mínútur. Af topppnum er frábært útsýni og sést vel til gossins í Eyjafjallajökli. Reyndar ... Lesa meira
|
|
2010-03-27 -
Hello:
My wife Ruth and I want to thank you for your hospitality, as I'm
sure our travel friends Evelyn and Alan agree. Staying at your farm
"in the country" was thoroughly enjoyed by all. We wish our stay
could have been longer. ... Lesa meira
|
|
2010-03-24 -
Vegna frábærra undirtekta bjóða Hestheimar aftur uppá Prinsessuhelgi.
Algert dekur, frábær reiðkennsla og skemmtileg samvera heila helgi í sveitinni - er hægt að hugsa sér eitthvað betra ?
Allur pakkinn kostar aðeins 49.500. Einungis 8 konur komast að á þessu námskeiði.
Innifalið :
- ... Lesa meira
|
|
2010-03-17 -
Hún var svo sæt í sér,vinnukonan okkar að hún bakaði afmælisköku 13. mars handa Babsý og við fórum með kökuna á Æskan og hesturinn. Lesa meira
|
|
2010-03-17 -
Hákon Snær var geimvera en Sunneva afar ákveðin ræstingarkona. Sunneva er í leiklistarvali og var leikritið þeirra mjög skemmtilegt, eins og reyndar öll leikritin. Alltaf mikill metnaður hjá nemendum og kennurum í Laugalandsskóla að hafa þessar árshátíðir vandaðar og fínar. Lesa meira
|
|
2010-03-16 -
Það voru knapar frá 4-15 ára sem sýndu listir sínar í Víðidalnum á Æskan og hesturinn og stóðu sig með miklum sóma. Þau tóku þátt í öllum 4 sýningunum og gerðu æfingar á hestbaki. Sjáið fjölda mynda inná Facebook síðu Hestheima !
Takk fyrir frábæra helgi krakkar, hittumst hress ... Lesa meira
|
|
2010-03-15 -
... í júní og ágúst 2010!
Hestheimar, Ásahreppi (við Hellu) eru í aðeins 50 mínútna keyrslu frá Reykjavík. Frábær aðstaða fyrir hesta og menn í sveitasælunni.
• Vikunámskeið: 7.-11. júní og 9.-13. ágúst 2010
• Innifalið: hestar, reiðkennsla, gisting, fæði, afþreying, o.fl.
• Verð kr. 50.000,- fyrir hvern nemanda ... Lesa meira
|
|
2010-03-12 -
Það voru prúðbúnir ungir nemendur sem sýndu listir sínar á æfingu í Víðdalnum í gær. Spenningurinn var mikill og flest voru vonsvikin yfir því að fá ekki að sýna lengur .) Ein hnátan felldi meira að segja tár yfir að þurfa að fara af baki, enda merin gulli ... Lesa meira
|
|
2010-03-11 -
Hæ og hó allir foreldrar og forráðamenn nemenda í Reiðskóla Hestheima .)
Generalæfingin er í kvöld eins og allir vita.
Knaparnir eiga að mæta í svörtum (dökkum) reiðbuxum og svörtum hestheimapeysum (líka þau 3 yngstu sem verða í hringtaumi).
Þau sem ekki eiga hestheimapeysu ... Lesa meira
|
|
2010-03-10 -
Frábæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Reiðskóla Hestheima
Generalæfing er á fimmtudagskvöld og hefst kl. 19.30. við erum væntanlega inná rétt fyrir klukkan 20, en við verðum að vera klár um leið og þetta byrjar.
Kastljós verður á staðnum .)
Reiðskóli fellur niður á fimmtudaginn 11. Mars vegna ... Lesa meira
|
|
2010-03-10 -
Góðir foreldrar og forráðamenn nemenda í Reiðskóla Hestheima .)
Hér kemur dagskráin:
Dagskrá Kl. 13.00 og Kl. 16.00
1. Opnun fánareið
2. Grímutölt. Minna og meira
3. Andvari
4. Þytur
5. Thriller
6. Hestheimar
7 Sörli
HLÉ
8 Hörður
9 10-12 ára
10 Latibær
11 Gustur
13 ... Lesa meira
|
|
2010-03-10 -
Lesa meira
|
|
2010-03-08 -
Það verða 15 flottir Reiðskólanemendur sem taka þátt í stórsýningunni Æskan og hesturinn næstu helgi. )
Allir að mæta og klappa fyrir Reiðskóla Hestheima, ókeypis aðgangur ! Lesa meira
|
|
2010-03-06 -
Hákon Snær bjó til sel með vængi og Mexíkóskan hatt og eiturkló. Svakalega flottur selur sem er blár og rauður, rosalega vel gerður. Þetta er mjúkur bangsi.
Takk fyrir, Hákon minn .) Lesa meira
|
|
2010-03-05 -
TÖLT BARNA:
1. Ómar Högni Guðmarsson
2. Annika Rut Arnarsdóttir
3. Sigurlín Franziska Arnarsdóttir
4. Telma Dögg Tyrfingsdóttir
5. Margrét Heiða Stefánsdóttir
6. Halla Rún Erlingsdóttir
Lesa meira
|
|
2010-03-05 -
1. Ómar Högni Guðmarsson
2-3. Annika R. Arnarsdóttir (vann hlutkesti og fékk silfurpeninginn)
2-3. Sigurlín F. Arnarsdóttir
4. Telma Dögg Tyrfingsdóttir
5. Fanney Bjarnadóttir
6. Halla Rún Erlingsdóttir
Lesa meira
|
|
2010-03-05 -
Nú er að spreyta sig á dönskunni, værsgu !
Prinsesseweekend på Hestheimar.
Den 19. januar 2010 rejste vi forventningsfulde til Island. Vi havde booket os ind på Hestheimar til ´prinsesseweekend´. Vi var noget spændte på hvad det indebar, og om det nu var for fjollet, at rejse til ... Lesa meira
|
|
2010-03-03 -
Nú styttist í stórsýninguna Æskan og hesturinn sem Reiðskóli Hestheima tekur þátt í. Sýnt verður tvisvar sinnum 13. og 14. mars 2010 og verður eflaust húsfyllir eins og fyrr.
Við þurfum að skipuleggja ferðir fyrir nemendur og hesta,ásamt fleiru. Vonumst til að sjá sem flesta, fundurinn verður haldinn ... Lesa meira
|
|
2010-03-02 -
Það var hin unga Telma Dögg Tyrfingsdóttir frá Meiri-Tungu sem hlaut þann heiður að vera valin efnilegasta nemandi Reiðskóla Hestheima. Telma er afar samviskusöm,lagin og með góða framkomu gagnvart mönnum og dýrum. Hjartanlega til hamingju Telma og fjölskylda.
Lea Helga og Marteinn, Hestheimum. Lesa meira
|
|
2010-03-02 -
Þær stóðu sig frábærlega vel á fyrsta Hestheimamótinu ( eins og reyndar allir keppendurnir): Sigurlín og Brimrún Eir, hjartanlega til hamingju skvísur :)
Lea Helga og Marteinn, Hestheimum.
Stigahæsti knapi í barnaflokki 1fl:
Sigurlín Franziska Arnarsdóttir
Stigahæsti knapi í barnaflokki 2.fl.:
Brimrún Eir Óðinsdóttir
Lesa meira
|
|
2010-03-01 -
Góð þáttaka var á mótinu og knaparnir allir til fyrirmyndar, stundvís og með bros á vör. Takk fyrir frábæran dag allir saman. Hér koma úrslitin.
TÖLT UNGLINGAR:
1. Sóley S. Meyer
2. Brynjar Gísli Stefánsson
3. Hjalti Sigurðsson
4. Hjördís A. Hjartardóttir
Lesa meira
|
|
2010-02-27 -
HESTAKÖKUGERÐARKEPPNI Á HESTHEIMAMÓTI REIÐSKÓLA HESTHEIMA 28.2.2010.
VINNINGUR AÐ VERÐMÆTI YFIR 50.000:
1. ÁLETRAÐUR BIKAR
2. REIÐSKÓLAKORT AÐ ANDVIRÐI 22.500,-
3. GISTING FYRIR 2 OG MORGUNVERÐUR Í HESTHEIMUM: 15.000,-
4. REIÐTÚR FYRIR 2 Í KLUKKUTÍMA: 10.000,-
ÁFRAM REIÐSKÓLI HESTHEIMA !!!!
Lesa meira
|
|
2010-02-27 -
Matti og Frank fóru í útreiðartúr og spjölluðu saman síðasta mánudag. Með Frank voru hljóðmaður og kvikmyndatökumaður og tók þetta allt ríflega 4 tíma. Þátturinn verður sýndur í september og Hestheimahlutinn mun taka um 4 mínútur! Mikið þolinmæðisverk að taka upp sjónvarpsþátt :9
Takk kærlega fyrir komuna Frank, ... Lesa meira
|
|
2010-02-27 -
Það er frábært að allir okkar gestir vilja koma aftur, bæði til að gista og einnig þeir sem fara með okkur í lengri hestaferðirnar. Nú þegar höfum við bókað hestaferðir í 5 vikur næsta sumar og margar þeirra með gestum sem hafa verið hjá okkur áður. Við stækkuðum gistinguna ... Lesa meira
|
|
2010-02-27 -
Það færist sífellt í vöxt að jóga - og gönguhópar dvelji í Hestheimum, enda hvergi betra að ná upp góðu orkuflæði. Aðstaðan er frábær, maturinn heimatilbúinn, gönguleiðirnar fallegar, hvað er hægt að biðja um meira ? Þetta eru íslenskir og þýskir hópar sem hafa pantað hjá okkur og ... Lesa meira
|
|
2010-02-26 -
Dagskrá Hestheimamótsins 28.2. , keppnin hefst kl. 12 og lýkur um kl. 19:00 !!!!
Hér kemur dagskráin (með fyrirvara um breytingar, ef við verðum á undan tímaáætlun munum við byrja strax á næstu keppnisgrein)
Dagskrá og rásröð:
KL. 12.00 Tölt unglinga
1. Holl: Sóley S. Meyer Svartur frá Síðu, brúnn
Lesa meira
|
|
2010-02-22 -
Við vorum vongóð þegar við skipulögðum fyrsta reiðskólamót Reiðskóla Hestheima n.k. sunnudag í Hestheimum en við áttum ekki von á svona frábærum undirtektum: Við erum búin að taka á móti 110 skráningum ! Mótið hefst klukkan 14:00 og er ókeypis aðgangur .) Hestakökugerðarkeppni og hægt að kaupa sér ljúffengar ... Lesa meira
|
|
2010-02-19 -
Það verður líf og fjör í Hestheimum núna um helgina því hér verða 10 hressar konur á reiðnámskeiði fyrir hræddar konur. Þetta eru sívinsæl námskeið og komust færri að en vildu að þessu sinni. Í kvöld hittumst við allar í íbúðarhúsinu, spjöllum saman og eigum notalega stund þar sem ... Lesa meira
|
|
2010-02-18 -
Bíll, jólatré, tígrisdýr, kúrekastelpa,Súpermann, smaladrengur, unglingur, strumpur, fótboltakappi, álfadís, býfluga og fleiri skrýtnir nemendur voru í reiðkennslutíma í gær ! Mjög skemmtilegur þessi öskudagur ! Bara fjör í Reiðskóla Hestheima og aftur í dag ! Lesa meira
|
|
2010-02-15 -
Polla- barna-unglinga-og fullorðinsflokkur !
Mótið er eingöngu ætlað nemendum reiðskólans.
Pollaflokkur: Aðeins fyrir pollahópskrakka: Ásetu og jafnvægisæfingar, þrautakóngur (Öll börn fá verðlaun, ekki raðað í sæti í pollaflokki)
Barnaflokkur: 12 ára og yngra : Öll börn fá verðlaun, raðað í sæti eftir einkunn.
• Þrautakóngur, 2 inná í ... Lesa meira
|
|
2010-02-13 -
Miðvikudaginn 17. febrúar (Öskudag) og fimmtudaginn 18. febrúar verður ÖSKUDAGSGLEÐI í Reiðskólanum. Nemendur eiga þá að mæta í búningum til kennslu. Verðlaun fyrir fallegasta búninginn !
Farið verður í leiki á hestbaki og ýmislegt sprellað ! Hittumst hress og kát í Reiðskóla Hestheima !
Lesa meira
|
|
2010-02-08 -
Í dag fór Styrmir Árnason, heimsmeistari með meiru, héðan frá Hestheimum aftur til Þýskalands með 9 manna hóp af Þjóðverjum. Þeir dvöldust hér í góðu yfirlæti í 4 nætur. Fóru þeir í reiðtúra daglega, í heimsóknir á hrossaræktarbýli í nágrenni Hestheima, á sölusýningu hér og á Þorrablót Áshreppinga. Hópurinn ... Lesa meira
|
|
2010-02-08 -
Í síðustu viku tóku tveir nemendur Reiðskóla Hestheima Knapamerkispróf 2. stig. Það voru þau Einar Gíslason og Kristín Þóra Pétursdóttir. Stóðu þau sig með glans . Meðaleinkunn þeirra var 8,7 sem er frábær árangur ! Við erum rosalega stolt af nemendum okkar hér í Hestheimum.
Gaman er ... Lesa meira
|
|
2010-02-08 -
Í síðustu viku tóku tveir nemendur Reiðskóla Hestheima Knapamerkispróf 2. stig. Það voru þau Einar Gíslason og Kristín Þóra Pétursdóttir. Stóðu þau sig með glans . Meðaleinkunn þeirra var 8,7 sem er frábær árangur ! Við erum rosalega stolt af nemendum okkar hér í Hestheimum.
Gaman er ... Lesa meira
|
|
2010-02-07 -
nr :1 Holl: 1
Nafn : Kantur frá Dalbæ Verð : 450.000
F.nr : IS2003187721 Knapi : Arabær sf
Litur : Brúnn Umráðam : Arabær sf
F : Toppur frá Eyjólfsstöðum Sími : 864-2118 / 868-0304
M : Glæta frá Dalbæ Netfang : arabaer@arabaer.is
Lýsing : Veffang: www.arabaer.is
nr :2
Nafn : Dagrenning frá Bjarnastöðum Verð : 550.000
F.nr : IS2000288740 Knapi : María Þórarinsdóttir
Litur : Bleikskjótt Umráðam : María Þórarinsdóttir
F ... Lesa meira
|
|
2010-02-07 -
Það er opnuviðtal við Leu Helgu í Hestheimum í Séð og Heyrt þar sem fjallað er um velheppnaða Prinsessuhelgi hér í Hestheimum. Endilega lítið á þetta :) Lesa meira
|
|
2010-02-06 -
Uppselt á þetta námskeið ! Verð aðeins 25.000,- fyrir reiðkennslu, hest, reiðtygi, gistingu í 2 nætur, hádegisverð á laugardeginum o.fl. Þau eru sívinsæl, námskeiðin okkar fyrir hræddar konur sem verða hugrakkar í Hestheimum.)
Haldið aftur vegna ánægju með fyrri námskeið og mikillar eftirspurnar. Kennari verður hinn reynslumikli réttindakennari Barbara Meyer ... Lesa meira
|
|
2010-02-02 -
Flestir af söluhestunum verða sýndir á vef Hestafrétta !
Hægt er að bjóða uppá söluskoðun á keyptum hestum strax að sölusýningu lokinni.
Skráningargjald er 8.000 fyrir þá söluhesta sem verða teknir upp og sýndir á vef Hestafrétta, skráningargjald er 8.000 á hest. Fyrir þá sem ekki eru teknir upp ... Lesa meira
|
|
2010-02-02 -
NÚ FÖGNUM VIÐ GÓÐUM ÁRANGRI OG SAMSTARFI Á SUÐURLANDI !
Þar sem Lea Helga er í stjórn bæði Markaðsstofu Suðurlands og Ferðamálasamtaka Suðurlands viljum við gjarnan benda ykkur á þennan viðburð - allir að mæta í góðum gír !
Dagskrá:
Setning Klasasprengjunnar
Korka hópurinn, tónlistaratriði
Markaðsstofa Suðurlands
Háskólafélag Suðurlands
Lesa meira
|
|
2010-02-02 -
Nemendur í Reiðskóla Hestheima ætla að gera enn betur en í fyrra og æfa frábær atriði fyrir Æskan og hesturinn 2010. Það er mikil tilhlökkun og metnaður hjá nemendum reiðskólans...
ÁFRAM REIÐSKÓLI HESTHEIMA !!! Lesa meira
|
|
2010-01-31 -
Vikulegir tímar í Reiðskóla Hestheima, markvisst nám allan ársins hring. Knapamerkjakennsla.
Spennandi reiðskóli fyrir börn og fullorðna ! Aðeins 50 mínútna akstur frá Reykjavík ! Nemendur eru á aldrinum 3-70 ára ! Getu- og aldursskiptir hópar.
Nemendur geta komið með ... Lesa meira
|
|
2010-01-23 -
Lesa meira
|
|
2010-01-23 -
Lesa meira
|
|
2010-01-23 -
Það var ekki að sjá annað en Klara Sæland frá Þjóðólfshaga III kynni vel að meta fagmannlegt nudd Evu Eðvaldsdóttur nuddara úr Mosó ! Nú liggur vel á mér .... ! .) Lesa meira
|
|
2010-01-23 -
Það eru hamingjusamar prinsessur sem dveljast núna um helgina í dekri í Hestheimum.)Við komuna fengu þær góðar gjafir, kórónur, konfekt ,rósir og fleira ....
Þær hafa fengið góðan mat og drykk og frábæra kennslu. Laugardagurinn er sérstakur lúxusdagur þar sem þær byrjuðu í reiðkennslu í reiðhöllinni, fóru svo eftir ... Lesa meira
|
|
2010-01-11 -
Það er löngu uppselt á keppnisreiðnámskeiðið hjá Mette Manseth 13.-14. febrúar og nokkrir komnir á biðlista. Það verður spennandi að fá þennan færa og vinsæla reiðkennara til okkar í Hestheima og einnig alla nemendurna.
Verið öll velkomin ! Lesa meira
|
|
2010-01-11 -
Hestheimar, Ásahreppi (við Hellu) eru í aðeins 50 mínútna keyrslu frá Reykjavík. Frábær aðstaða fyrir hesta og menn í sveitasælunni.
• Vikunámskeið: 7.-11. júní og 9.-13. ágúst 2010
• Innifalið: hestar, reiðkennsla, gisting, fæði, afþreying, o.fl.
• Verð kr. 50.000,- fyrir hvern nemanda ( sama verð í tvö ár)
• Reiðkennsla, ... Lesa meira
|
|
2010-01-11 -
Upplýsingar til nemenda: Hestarnir eiga að vera a.m.k. 5 vetra og í góðri þjálfun.
Takmarkaður fjöldi þáttakenda kemst að, þannig að nú er um að gera að nýta sér þetta einstaka tækifæri.
Frábær kennari og aðstaða ! Gisting í notalegu Gestahúsi með heitum potti í boði. Ennfremur hesthúspláss ... Lesa meira
|
|
2010-01-10 -
Hentar fyrir 4-12 manns. Tilvalið fyrir hópa og fjölskyldur.
Frábær aðstaða fyrir hesta og menn!
Gisting í tveggja manna herbergjum í notalegu Gestahúsi með heitum potti og fullbúnu eldhúsi, ásamt setustofu.
Reiðkennslan fer fram í Reiðhöllinni, útvegum hesta , reiðtygi og hjálma.
Erum með 10 af ... Lesa meira
|
|
2010-01-03 -
Gleðilegt nýtt ár, kæru Reiðskólanemendur, foreldrar og forráðamenn !
Fyrstu reiðskólatímarnir á nýju ári verða á þrettándanum, þann 6. Janúar kl. 17:00 og 18:00.
POLLATÍMINN FELLUR NIÐUR, því Reiðskóli Hestheima býður nemendum og foreldrum í pylsupartý klukkan 19:00.
Að því loknu ætlum við að fara á Selfoss og ... Lesa meira
|
|
2009-12-31 -
Fjölskyldan Hestheimum óskar öllum ættingjum, vinum, gestum og velunnurum gleðiríks nýs árs með þúsund þökkum fyrir allar góðu stundirnar, skemmtilega viðkynningu og frábæra aðstoð á árinu sem er að líða.
Hittumst heil á nýju ári,
Lea, Marteinn, 'Isak, Sunneva og Hákon. Lesa meira
|
|
2009-12-28 -
Það voru margar góðar gjafir sem Hákon Snær Hestheimaprins fékk á jólunum, þar þa meðal íðilfagur Transformersbúningur.... Ein af þeim merkilegri að hans mati voru skrifaðir peningar frá Afa Óla og vildi hann endilega fá mynd af sér með þessa gjöf .) Lesa meira
|
|
2009-12-23 -
Mikill áhugi fyrir sumarnámskeiðunum fyrir 8-12 ára krakka næsta sumar 2010 í Hestheimum !
Við erum alsæl hér í Hestheimum þar sem skráning á sumarnámskeiðin fyrir 8-12 ára börn hefur farið afar vel af stað. Spurst hefur út hversu ánægð börnin voru sem sóttu þetta námskeið síðasta sumar. Enda aðstaðan ... Lesa meira
|
|
2009-12-21 -
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI FERÐAÁR
MERRY CHRISTMAS AND A HAPPY NEW YEAR
GLÆDELIG JUL OG GODT NYT ÅR
FROHE WEIHNACTHEN UND EIN GLÜCKLICHES NEUES JAHR
JOYEUX NOËL ET UNE NOUVELLE ANNÉE HEUREUSE
BUON NATALE E UN NUOVO ANNO FELICE
Lesa meira
|
|
2009-12-15 -
Heilir og sælir frábæru reiðskólanemendur, foreldrar og forráðamenn !
Nemendur og foreldrar hafa ekki alveg haft á hreinu hvenær verður kennt þessa viku, en tímar verða eins og vanalega:
Miðvikudagur 16.desember kl. 17:00 – Knapamerkjahópur
... Lesa meira
|
|
2009-12-15 -
Heilir og sælir frábæru reiðskólanemendur, foreldrar og forráðamenn !
Nemendur og foreldrar hafa ekki alveg haft á hreinu hvenær verður kennt þessa viku, en tímar verða eins og vanalega:
Miðvikudagur 16.desember kl. 17:00 – Knapamerkjahópur
... Lesa meira
|
|
2009-12-14 -
http://reidskoli.blogcentral.is/
Verið nú dugleg að skrifa ykkar skoðanir og setja inn færslur :9
Lesa meira
|
|
2009-12-14 -
Bjóðum aftur uppá vinsælu helgarnámskeiðin okkar sem hafa verið afar vinsæl í Hestheimum 2008 og 2009, þar sem fjöldi knapa hefur verið frá 2-8 manns. En getum tekið allt að 12 manns á námskeið í einu.
Nemendur hafa notið lífsins, lært hjá bestu kennurum landsins, snætt góðan mat og slakað ... Lesa meira
|
|
2009-12-09 -
Tómas Snorrason og Jelena Ohm sjá um að kenna meðan Babsý er úti. Þau kenna á morgun, fimmtudaginn 10. des og svo 16. og 17. desember.
Allir að vera duglegir að mæta í síðustu tímana fyrir jól !
Kennslan hefst svo aftur eftir jólafrí miðvikudaginn 6. janúar 2010 !
Lesa meira
|
|
2009-12-05 -
Það eru 3 fullbókaðir lengri reiðtúrar frá Hestheimum næsta sumar ! Aldrei hefur verið boðið uppá jafnmargar hestaferðir frá Hestheimum. Þetta eru frá 5-7 daga langir túrar. Dagsetningarnar eru þessar:
1. Frá 24.6.-1.7.2010. Uppselt.
2. Frá 5.7.-10.7. Uppselt.
3. Frá 16.7.-22.7. Uppselt.
4. Frá 25.7.-29.7. ... Lesa meira
|
|
2009-12-03 -
Reiðskóli Hestheima mun standa fyrir
Hesta-Jóla-hátíð
Nemendur skólans verða með reiðsýningu.
Húsið opnar klukkan 14.00. Heitt kakó, kaffi og kökur til sölu.
Sýningin hefst stundvíslega klukkan 15.00 !
Jólaföndur að lokinni sýningu.
Óvæntir gestir koma í heimsókn og teymt verður undir börnum
ALLIR VELKOMNIR - Frítt inn!
Með jólakveðju ... Lesa meira
|
|
2009-12-03 -
Nú eru Hestheimar bæði á Facebook og á Twitter: http://twitter.com/hestheimar
Um að gera að kíkja á okkur þar :) Lesa meira
|
|
2009-11-30 -
Það var stoltur strákur sem tók þátt í þremur greinum: hlaupi, langstökki og "spjót"kasti á Hvolsvelli 27.11.2009. Það langbesta var að fá grillaðu pylsu á eftir og GULLPENING !
Alger íþróttagarpur enda keppti Hákon Snær fyrir íþróttafélagið Garp .) Lesa meira
|
|
2009-11-27 -
Víð í Hestheimum fáum til okkar þýska og belgíska gesti sem koma á reiðnámskeið í Hestheimum í janúar og febrúar 2010. Ýmist eru þetta helgar- eða vikureiðnámskeið.
Þannig að nú er um að gera fyrir íslensku námskeiðshópana okkar að setjast niður og velja helgi í Hestheimum, sem hentar öllum. Þessi ... Lesa meira
|
|
2009-11-27 -
Reiðskóli Hestheima mun standa fyrir Hesta-Jóla-hátíð.
Nemendur skólans verða með reiðsýningu.
Húsið verður opnað klukkan 14.00.
Sýningin hefst stundvíslega klukkan 15.00!
Heitt kakó, kaffi og kökur til sölu .
Jólaföndur að lokinni sýningu.
Óvæntir gestir koma í heimsókn
og teymt verður undir börnum.
ALLIR VELKOMNIR.
Frítt inn ... Lesa meira
|
|
2009-11-26 -
Hestheimar fengu viðurkenningu frá Better Business fyrirtækinu sem sendi þrjá gesti í "hulduheimsóknir" ("Mystery Shoppers") síðastliðið sumar.
Hestheimar fengu heildarskor á milli 80 - 90% af 100 mögulegum og alltaf 100 stig (fullt hús) fyrir matinn í öllum þremur heimsóknunum ! Húrra fyrir okkur öllum í Hestheimastarfsliðinu ... Lesa meira
|
|
2009-11-25 -
Það voru tæplega 60 konur sem mættu fagurlega skreyttar í indverskum búningum laugardaginn 21. nóvember s.l.
Hestheimar voru skreyttir í indverskum stíl og Yesmine Olsen eldaði dýrindis indverska rétti og söng lag á Hindú.
Silja Hrund Einarsdóttir fatahönnuður frá SHE design, sá um tískusýningu á ... Lesa meira
|
|
2009-11-19 -
Indverskt þema : matur og tónlist. Vínkynning og gjafir !
Yesmine Olsen verður með sýnikennslu í indverskri matargerð, konurnar fá að smakka á réttunum. Hún mun einnig syngja lag úr Bollywood sýningunni sem er í Turninum. Matreiðslubók Yesmine til sölu á sérstöku konukvöldsverði ... Lesa meira
|
|
2009-11-17 -
Við í Hestheimum vorum beðin um að skrifa stutta grein um ferðamennsku á Suðurlandi sem birtist í alþjóðlegu fréttabréfi, hér er greinin:
South of Iceland offers the most variety of all parts of Iceland: volcano, glaciers, hot springs, among them geysir, waterfalls you can walk behind, black beach, natural ... Lesa meira
|
|
2009-11-15 -
Það eru eftir tvær littlar, fallegar, loðnar kelirófur sem eru á mátulegum aldri til að fara til nýrra eigenda.
Þetta eru alger krútt sem allir elska ! Endilega hafið samband í síma: 487-6666 eða hestheimar@hestheimar.is
Lesa meira
|
|
2009-11-15 -
Það voru sjö hræddar konur sem luku helgarreiðnámskeiði í Hestheimum í dag, 15. nóvember með glæsibrag! Þær snéru öfugt á hestinum á brokki og lyftu höndum hátt yfir höfuð, ásamt fjölda annarra æfinga... aldeilis ekki hræddar lengur, heldur orðnar að "Superwomen " Frábær árangur hjá konunum og kennara þeirra: Barböru ... Lesa meira
|
|
2009-11-13 -
Það eru fjórar flottar prinsessur sem eru í pollatímunum. Þær heita: Þorbjörg, Agnes, Marey Sól, Sunna og Heiðdís. Með þeim á myndinni er Barbara Meyer, reiðkennari,ásamt tveimur mæðrum: Brynju J'onasdóttur og Huldu Brynjólfsdóttur. Prinsessurnar litlu standa sig mjög vel og sú yngsta, Sunna er aðeins 3ja ára ! ... Lesa meira
|
|
2009-11-12 -
Nú fer hver að verða síðastur á þessu ári að læra járningar af hinum frábæra kennara: Guðmundi Guðmundssyni frá Hellu. Hestheimar bjóða uppá eitt námskeið enn, laugardaginn 21. nóvember. Þetta er heilsdagsnámskeið sem hefst kl. 10:00 og lýkur um kl. 16:00. Verð: 15.500, hádegisverður innifalinn, kaffi og te meðan á ... Lesa meira
|
|
2009-11-12 -
Nú styttist í eins árs afmælishátíð Reiðskóla Hestheima, sem verður haldin um leið og jólahátíðin í desember.
Við ætlum að hafa það ljúft og skemmtilegt saman, vera með reiðsýningu þar sem allir verða í búningum sem vilja, gera fallegt jólaföndur saman, drekka heitt súkkulaði og borða nýbakaðar ... Lesa meira
|
|
2009-11-10 -
Vegna mikillar eftirspurnar bjóðum við aftur uppá pollatíma í Reiðskólanum. Aldurslágmark er 4 ár og er hver kennslustund hálftími, þannig að úthaldið og gleðin haldist óskert :)
Tíu tíma kort kostar 20.000,- og er innifalið:
- Reiðkennsla
- Hestur
- Hjálmur
- Kakó og kex
- Öll aðstaða ... Lesa meira
|
|
2009-11-04 -
nr :1 Holl: 1
Nafn : Röskva frá Lynghóli Verð : 900,000
F.nr : is2002282500 Knapi : Arabær sf
Litur : Brún tvístjörnótt Umráðam : Arabær sf
F : Sveinn-Hervar Sími : 864-2118 / 868-0304
M : Vösk frá Gerðum Netfang : arabaer@arabaer.is
Lýsing : Falleg meri sem fer vel undir Veffang: www.arabaer.is
hágeng, rúm, viljug,jákvæð, alþæg og er mjög ... Lesa meira
|
|
2009-10-23 -
Í Hestheimum, sem eru aðeins 50 mínútur frá Reykjavík, finna hjón allt sem þau þurfa: Kyrrð, dekur, fallegt umhverfi og rjúkandi rómantík !
Gist er í notalegu Gestahúsi, þar sem er eldhús, setustofa og heitur pottur.
Hægt er að panta nudd inná herbergin, jógakennslu og margt fleira...
Hesthúspláss ... Lesa meira
|
|
2009-10-23 -
Hinir geysivinsælu pollatímar eru að fara aftur í gang. Lágmarksaldur er 4ra ára. Takmarkaður fjöldi kemst að í hvern tíma.
Áhugasamir hafi samband í síma: 487-6666(896-4446 ( Barbara Meyer) eða í hestheimar@hestheimar.is
Hvað ungur nemur, gamall temur ! Um að gera að hefja markvisst nám sem ... Lesa meira
|
|
2009-10-19 -
Öllum er heimil þátttaka í sölusýningu Hestheima. Sýningin verður sýnd á vef Hestafrétta, www.hestafrettir.is og kostar 8.000 á hvern hest.
Húsfyllir var á októbersýninguna og frábær stemming.
Áður en sölusýningin hefst eða klukkan 13:30, gefst gestum kostur á að skoða nýjan og velútbúinn dýralæknabíl! Bíllinn er í raun dýrlæknastöð ... Lesa meira
|
|
2009-10-18 -
Hrossaræktarfélagði Fengur í Ásahreppi stendur fyrir folaldasýningu í Hestheimum. Væntanlegum þáttakendum er bent á að þau folöld sem lenda í þremur efstu sætunum í hvorum flokki öðlast þátttökurétt á "stórsýningu" folalda sem haldin veðrur í Rangárhöllinni 21.11. n.k.
Öllum er heimil þátttaka.
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Lesa meira
|
|
2009-10-17 -
Við bjóðum nýja nemendur velkomna og nú eru líka tímar á þriðjudögum klukkan 17 og 18:00. Einnig er enn laust í timana á miðvikudögum og fyrri tímann, kl. 17:00 á fimmtudögum.
Endilega hafið samband í síma 487-6666 eða hestheimar@hestheimar.is
til að skrá ykkur og fá nánari upplýsingar.
Reiðskóli Hestheima er ... Lesa meira
|
|
2009-10-16 -
Tæplega 3ja vikna krúsudúllur leita að góðu heimili og góðum eigendum. Þetta eru 2 högnar sem eru tvílitir: hvitir og gulir. Einnig eru 4 læður sem eru þrílitar: hvítar, gular og svartar. Allir kettlingarnir eru dásamlega fallegir og móðirin er loðin enda hálfur skógarköttur.
Áhugasamir hafi samband í síma: ... Lesa meira
|
|
2009-10-15 -
Hreint ótrúlegur árangur náðist á helgarnámskeiði fyrir hræddar konur í október. Sumar höfðu ALDREI fyrr á ævinni farið á hestbak, flestar höfðu dottið af hestbaki og allar vildu öðlast meiri kjark. Í lok námskeiðsins sátu þær öfugt á hestbaki meðan Barbara Meyer teymdi undir þeim á brokki í taumhring.
Lesa meira
|
|
2009-10-15 -
Það var erfitt að trúa eigin augum í námskeiðslok þegar "hræddu" konurnar gerðu ótrúlegustu fimleikaæfingar berbakt ! Lesa meira
|
|
2009-10-12 -
Húrra ! Við ætlum á stóra bílnum til Reykjavíkur að sjá myndina um Kraft frá Bringu, klukkan 20:00. Þetta er myndin sem allir eru að tala um - mjög skemmtlieg mynd !
Ferðirnar verða í boði Reiðskólans en nemendur þurfa sjálfir að greiða fyrir bíómiðann.
Mæting ... Lesa meira
|
|
2009-10-12 -
Sölusýningarhópur Hestheima státar af 9 ára samfelldri sölusýngarsögu. Það leynir sér ekki að hestafólk kann vel að meta að ætíð er hægt að ganga að sölusýningunum vísum og traustur hópur sem stendur að þeim. Fullt hús var í gær og óvenju margir hestar sem henta í keppni voru sýndir. ... Lesa meira
|
|
2009-10-10 -
nr :1 Box: Holl:
Nafn : Léttfeti frá Hofi Verð : 250,000
F.nr : IS1997177420 Knapi : Eiður
Litur : Rauðblesóttur, glófextur Umráðam : Eiður
F : Kolfinnur frá Kjarnholtum Sími : 894-2590
M : Blesa frá Hofsnesi Netfang : hhellir@hellir.is
Lýsing : Góður reiðhestur Veffang: www.hhellir.is
nr :2 Box: Holl:
Nafn : Embla frá Kambi Verð : 500,000
F.nr : IS2004287462 Knapi : Hallgrímur/Sævar
Litur : jörp Umráðam : Arabær sf.
Lesa meira
|
|
2009-10-09 -
Ekki hika við að hafa samband og skrá ykkur á hið hagkvæma og vinsæla járningarnámskeið.
Kennari er eins og ætíð, reynsluboltinn Guðmundur Guðmundsson frá Hellu.
Verð aðeins 15.000 fyrir heilsdagsnámskeið með hádegisverði.
Nánari upplýsingar og skráning í síma: 487-6666 og hestheimar@hestheimar.is
Lesa meira
|
|
2009-10-08 -
Allir söluhestar verða sýndir á vef Hestafrétta !
Áður en sölusýningin hefst, verður Hallgrímur Birkisson frá Arabæ með afar áhugaverða sýnikennslu, ókeypis aðgangur.
Allir söluhestar verða teknir upp og sýndir á vef Hestafrétta, skráningargjald er 8.000 á hest.
Nánari upplýsingar og skráningar í síma: 487-6666 og hestheimar@hestheimar.is
... Lesa meira
|
|
2009-10-07 -
Einnig hefst kennsla í Knapamerkjum 3. Reiðskólinn er kominn á fulla ferð. Nemendur sem tóku próf í Knapamerkjum 1 og 2 í haust rúlluðu þessu upp. Nú höldum við áfram, kennum Knapamerki 1, 2 og 3 fram að áramótum. Við erum stolt af okkar nemendum og bjóðum nýja nemendur hjartanlega ... Lesa meira
|
|
2009-09-23 -
Það er fullbókað á járningarnámskeiðið 17. október og vegna mikils áhuga höfum við ákveðið að hafa annað námskeið sunnudaginn 18. október. Skráning er hafin !
Hagsýni í kreppunni !!! Alltaf gott að geta rekið undir klárana t.d. í hestaferðalögum ! :)
Við eigum aðeins 4 pláss laus ... Lesa meira
|
|
2009-09-21 -
Allir að mæta næsta fimmtudag í Reiðskóla Hestheima !
Það er gaman að sjá gamla og nýja nemendur mæta galvaska og námsfúsa í Reiðskóla Hestheima að loknu sumri.
Næsti tími verður fimmtudaginn 24.9. klukkan 17:00.
Hittumst hress og kát í Hestheimum, verið öll hjartanlega velkomin ... Lesa meira
|
|
2009-09-17 -
Vinsælt hefur verið hjá gönguhópum að gista og snæða í Hestheimum og fara í gönguferðir þaðan. Fjöldi spennandi gönguleiða eru í næsta nágrenni þar sem útsýnið er frábært og umhverfið fjölbreytt.
Nánari upplýsingar veittar í síma. 487-6666.
Öll ferðalög hefjast á einu skrefi ! :) Lesa meira
|
|
2009-09-17 -
Það er Tómas Snorrason sem kennir í Reiðskóla Hestheima næstu tvær vikurnar, þar sem Barbara Meyer er farin í "sumar"frí.) Við biðjum nemendur um að láta okkur vita ef þeir komast ekki, helst daginn áður, þannig að víð séum ekki að bíða með hestana tilbúna...
Nú eru gatakortin ... Lesa meira
|
|
2009-09-16 -
Nú er um að gera að taka frá sunnudaginn 11. október, því þá verður óvenjuleg og spennandi sölusýning hér í Hestheimum. Að venju verður einnig boðið uppá athyglisverða sýnikennslu kl. 13:30, áður en sölusýningin hefst. Sýnikennslan er í boði sölusýningarhóps Hestheima. Á síðustu sölusýningu sá Jelena Ohm um sýnikennslu ... Lesa meira
|
|
2009-09-16 -
Þeir sem eru að rækta hross eða hyggjast hefja ræktun, ættu tvímælalaust að líta á sölusíðuna okkar. Þar eru 2 spennandi 1. verðlaunahryssur, Hekla frá Ólafvöllum ( sjá mynd) og Þota frá Skammbeinsstöðum og ein sem er alveg við 1. verðlaunin (Dálbrá frá Brávöllum). Þetta er algjör hestagull. ... Lesa meira
|
|
2009-09-15 -
Loksins, loksins !
Nú gefst tími til að uppfæra sölusíðuna okkar.) Það er mikill áhugi hjá kaupendum um þessar mundir og mikið spurt um góða reið- og keppnishesta. Lítið endilega á sölusíðuna okkar og hafið samband í 487-6666, því að það næst aldrei að setja alla hesta sem eru ... Lesa meira
|
|
2009-09-15 -
Þrefalt húrra fyrir 6 fyrstu nemendunum í Reiðskóla Hestheima sem tóku Knapamerki 1 og 2 þann 13. september s.l. MEÐALEINKUNNIN VAR : 9.00 ,hvorki meira né minna !!!
Til hamingju með árangurinn kæru nemendur og Barbara Meyer , við erum að rifna úr stolti :) Lesa meira
|
|
2009-09-13 -
Það var fín mæting á fyrstu sölusýningu vetrarins og mátti sjá úrval góðra hrossa. Salan gekk með hreinum ágætum og enn ýmislegt í farvatninu.
Næsta sölusýning verður 11. október og þá má vænta spennandi nýjunga..... meira um það síðar :) Lesa meira
|
|
2009-09-12 -
Loksins, loksins ! Nú styttist í fyrstu sölusýningu vetrarins í Hestheimum ! Þetta hefur alltaf verið fjölmenn sýning þar sem fjöldi söluhesta og áhorfenda hafa mætt.
Kaffiveitingar til sölu í hléi.
Jelena Ohm verður með AFAR ATHYGLISVERÐA SÝNIKENNSLU KLUKKAN 13:30, - áður en sölusýningin hefst, ... Lesa meira
|
|
2009-09-11 -
nr :1 Box: Holl:
Nafn : Léttfeti frá Hofi Verð : 250,000
F.nr : IS1997177420 Knapi : Eiður
Litur : Rauðblesóttur, glófextur Umráðam : Eiður
F : Kolfinnur frá Kjarnholtum Sími : 894-2590
M : Blesa frá Hofsnesi Netfang : hhellir@hellir.is
Lýsing : Góður reiðhestur Veffang: www.hhellir.is
nr :2 Box: Holl:
Nafn : Þór frá Haga Verð : 250,000
F.nr : IS2003181800 Knapi : Tómas Snorrason
Litur : bleikálóttur Umráðam : Hestheimar ... Lesa meira
|
|
2009-09-07 -
Bæði íslenskir og erlendir knapar hafa mikinn áhuga á helgarreiðnámskeiðunum okkar hér í Hestheimum. Meðal annars fáum við hóp af erlendum unglingum sem gista hér, fá reiðkennslu, fullt fæði og útreiðatúra. Þetta er frábær leið til að sameina nám, afslöppun og gleði í sveitasælunni. Erum með 10 af bestu reiðkennurum ... Lesa meira
|
|
2009-08-28 -
Nýir nemendur eru alltaf hjartanlega velkomnir í Reiðskóla Hestheima. Nemendur okkar eru á aldrinum 5-70 ára, vanir eða óvanir knapar. Allir fá kennslu við sitt hæfi og eina sem þarf til er að mæta á staðinn, við útvegum allt sem þarf.
Í byrjun september þreyta svo fyrstu nemendur í ... Lesa meira
|
|
2009-08-27 -
Við vorum beðin um að útvega duglega, íslenska hestastelpu sem vill vinna á ofurflottum hestabúgarði í Sviss. Þetta er staðsett rétt utan við Zürich og er hesthúsið glænýtt, sjálfvirkt hringteymingargerði, reiðhöll, glæsileg kaffistofa og öll aðstaða til fyrirmyndar. Þarna eru um 50 hestar, íslenskir og aðrar tegundir einnig. ... Lesa meira
|
|
2009-08-24 -
Nú þegar er mikill áhugi á helgarreiðnámskeiðunum hjá okkur í Hestheimum, sem haldin verða í vetur.
Spurst hefur út hversu frábær leið þetta er til að sameina nám og slökun í fallegu umhverfi með frábærum kennurum. Erum með 10 af bestu reiðkennurum landsins á skrá hjá okkur og hópurinn ... Lesa meira
|
|
2009-08-24 -
Enn og aftur slá járningarnámskeiðin í Hestheimum í gegn ! Uppselt er á septembernámskeiðið hjá okkur. Þetta er fræðandi og gagnlegt námskeið þar sem hinn reyndi kennari Guðmundur Guðmundsson frá Hellu fer á kostum.
Þetta er heilsdagsnámskeið sem kostar 15.500 og er hádegisverður innifalinn.
Haldið verður annað námskeið ... Lesa meira
|
|
2009-08-19 -
Það voru 4 getspakir þáttakendur í leik Hestheima þar sem giska átti á fjölda hóffjaðra í glervasa. Rétt tala var 671 en uppástungur voru frá 5-2.000.
1. Erla Valgeirsdóttir sem vann gistingu með morgunverði fyrir 2 í Hestheimum.
2. Esther Halldsdóttir sem vann 10 tíma kort í Reiðskóla ... Lesa meira
|
|
2009-08-17 -
Nú er líf og fjör í Hestheimum, glæsilegur hópur barna er mættur til okkar í vikudvöl. Námskeiðið fer vel af stað og augljóst að þetta er efnilegur og prúður hópur.
Hjartanlega velkomin krakkar ! Lesa meira
|
|
2009-08-13 -
Við vorum í sjöunda himni með ferðina til Sviss: frábært mót, áhugasamir gestir og góð samvinna íslensku fyrirtækjanna. Sviss er fallegt eins og póstkort, tandurhreint og íbúarnir sérlega elskulegir. Nú verður spennandi að sjá hverju kynningin skilar en nú þegar hefur verið bókað í hestaferðir næsta sumar ásamt mörgu fleiru. ... Lesa meira
|
|
2009-07-21 -
Hestheimar bjóða uppá skemmtilega 4ra daga ferð frá 25.-28.ágúst 2009.
Frábær ferð í fögru umhverfi, þægilegar dagleiðir sem henta öllum, bæði byrjendum og vönum reiðmönnum.
Riðið verður meðfram Rangá, uppfyrir Heklu og inná Fjallabak, þar sem ósnortin náttúran hrífur alla !
Dagur 1, þriðjudagur 25.8.:
Hestheimar - Hrólfsstaðahellir
Dagur ... Lesa meira
|
|
2009-07-21 -
Lærdómsríkt nám og hagkvæmt!
Grunnnámskeið í járningum verður haldið í 12. september 2009 í Hestheimum. Námskeiðið kostar 7.500kr.
Innifalið er sýnikennsla á 2-3 hestum, kaffi og heimabakað meðlæti.
Áætlaður tími er 4-5 tímar. Kennari er hinn færi og reynslumikli járningarmaður: Guðmundur Guðmundsson frá Hellu. Takmarkaður fjöldi þátttakenda kemst að.
Lesa meira
|
|
2009-07-19 -
Það er uppselt fyrir löngu á vikureiðnámskeiðið sem haldið verður hér í Hestheimum í ágúst. Erum við að vonum afar ánægð með góðar viðtökur og ljóst að spurst hefur út að nemendur hafa verið ánægðir. Gaman er að segja frá því að nemendur vilja æstir koma aftur til okkar og ... Lesa meira
|
|
2009-07-18 -
Nú er gósentíð hjá ferðaþjónustubændum á Íslandi og við hér í Hestheimum förum ekki varhluta af því :) Hér líða dagarnir fljótt og nýju herbergin okkar eru afar vel nýtt. Heiti potturinn við íbúðarhúsið vekur ávallt lukku og ekki spillir útsýnið fyrir ! Sigurður Hjaltested töfrar fram listagóðar máltíðir daglega ... Lesa meira
|
|
2009-07-15 -
Nemendur mega koma seinnipart á sunnudaginn og gista þá líka, ef það hentar betur. Kennslan hefst stundvíslega klukkan 9 á mánudagsmorgninum.
Námskeiðið hefst á almennri kynningu á efni námskeiðsins og nemendum skipt í hópa eftir getu. Knapar og hestar kynntir og paraðir. Kennarar og nemendur kynna sig.
Farið ... Lesa meira
|
|
2009-07-14 -
Dagana 13. - 16. ágúst 2009 verður haldin Sumarhátíð á Rangárbökkum. Þar verða nemendur í Reiðskóla Hestheima með reiðsýningu.
Hestheimar eiga að vera á laugardagskvöldi frá kl. 19.40 til 20.00 (besti tíminn og staðurinn :) ) á kynbótabrautinni fyrir framan brekkuna og áður en Töðugjöldin byrja formlega.
Lesa meira
|
|
2009-07-08 -
Fyrstu verðlaunamerin okkar, Þota frá Skammbeinsstöðum kastaði rauðu merfolaldi undan Bjarkari frá Blesastöðum þann 4. júlí 2009. Var því gefið nafnið Elja og er dóttirin hreyfingarmikil líkt og foreldrarnir :)
Nú eru 3 folöld komin í heiminn í Hestheimum þetta sumarið og von á tveimur til viðbótar .) Lesa meira
|
|
2009-07-08 -
Hestheimabændur fengu brúnt hestfolald þann 30. júní s.l. Nafnið er Eiðfaxi og var það heimasætan á bænum, Sunneva sem valdi nafnið. Lundin er einstök og hreyfingarnar lofa góðu .) Lesa meira
|
|
2009-07-08 -
Hestheimahjónin með vöskum aðstoðarmönnum fóru í vikulanga hestaferð í lok júní og byrjun júlí. Hófst hún í Hestheimum, farið í Hrólfsstaðahelli, Gunnarsholt, Valstrýtu, Einhyrning og Hungurfit og svo til baka... Meðal annars var riðið yfir Rangá.
Fengum við brakandi blíðu allan tímann og vakti leiðin, hestarnir, ferðafélagarnir og ... Lesa meira
|
|
2009-07-08 -
Það var frábær hópur barna sem dvaldi hér í Hestheimum í viku á reiðnámskeiði hjá Barböru Meyer og Tómasi Snorrasyni.Einnig störfuðu Guðbjörg inga Guðmundsdóttir sérkennari og Lea Helga Ólafsdóttir grunnskólakennari við námskeiðið. Börnin voru 23 talsins, á aldrinum
8-12 ára. Þau gistu öll í Hestheimum og voru í fullu ... Lesa meira
|
|
2009-07-08 -
Það var hlustað á hvert orð sem Kobbi í Sundhestum mælti af vörum fram, er nemendur á vikureiðnámskeiði í Hestheimum komu í heimsókn.
Krakkarnir fylgdust agndofa með þegar hesturinn synti í hestalauginni og voru þau afar fróðleiksfús og stillt.
Kærar þakkir fyrir okkur, Kobbi og Addý, það er dýrmætt að ... Lesa meira
|
|
2009-06-16 -
Markaðssetning og fjör í Brunnadern í Sviss 4.-11. ágúst 2009 ! Lea, Marteinn og Guðbjörg Inga ætla að kynna Hestheima í Sviss og hitta fjöldann allan af hestaáhugafólki þar. Gist verður í húsi í aðeins 6 km. fjarlægð frá mótssvæðinu, en einnig hjá svissneskum vinum sem eru miklir áhugamenn um ... Lesa meira
|
|
2009-06-16 -
Á fimmtudaginn 18.júní klukkan 17.oo eiga að mæta :
Kristjana
Telma
Elsa
Þórunn
Hjördís
Oddný
Lilja
Hvönn
Helga Sunna
Gurrý
Við viljum gjarnan hafa þau saman í hópi sem eru í knapamerkinu og þurfum við að athuga eftir ... Lesa meira
|
|
2009-06-11 -
Frí á 17.júní, tímarnir færast yfir á fimmtudagin 19. júní .) Hæ, hó, jibbý jeij!!!
Kæru Reiðskólanemendur og aðstandendur
Vð tökum okkur frí á 17. júní í Reiðskóla Hestheima. Tímarnir færast yfir á fimmtudaginn 18.júni fyrir þá sem vilja. Endilega látið okkur alltaf vita daginn áður ... Lesa meira
|
|
2009-06-01 -
Það verður líf og fjör í Hestheimum í sumar og gífurleg aukning í bókunum. Við tókum heita pottinn í notkun í dag og var það ljúft eftir annasaman dag, þar sem meðal annars var hlaupið á eftir tryppum í 3 tíma .) Lesa meira
|
|
2009-06-01 -
Nú hafa tvær af sumarstúlkunum okkar mætt til vinnu: Hulda Kolbeinsdóttir úr Mosó og Jeannine Winkel frá Þýskalandi. Í þessar viku bætist Erla Brá Sigfúsdóttir frá Helli í hópinn. Bæði Erla Brá og Hulda voru líka hjá okkur síðasta sumar, velkomnar aftur skvísur !
Einnig er heimasætan á bænum, Sunneva ... Lesa meira
|
|
2009-06-01 -
Við þurfum sko ekki að kvarta hér í Hestheimum því við erum komin með biðlista á vikunámskeið fyrir börn í júní og eigum aðeins eftir örfá pláss laus í ágúst ! Ekki þykir okkur verra að tvö af börnunum sem voru hjá okkur í fyrra, koma aftur í sumar. ... Lesa meira
|
|
2009-06-01 -
Við hér í Hestheimum reynum ætíð að eiga gott úrval söluhesta við allra hæfi. Nú erum við með gott úrval af traustum fjölskylduhestum. Ef þú ert að leita að traustum og góðum hesti, endilega hafðu samband í síma: 487-6666 eða hestheimar@hestheimar.is Lesa meira
|
|
2009-05-24 -
Litlu snúllurnar okkar fimm eru farnir að vappa um allt og skoða heiminn. Nú fær Pollý ekki lengur að hafa hundamatinn í friði þvi fimm litlir hnoðrar vilja líka fá sér :)
Þetta eru kelirófur og prúðir hvolpar - enn vantar heimili fyrir eina tík og einn rakka, ... Lesa meira
|
|
2009-05-24 -
Við erum svört tík ( með hvítu og brúnu ívafi) og brúnn rakki með hvítu og svörtu. Við fæddumst 28. apríl, mamma okkar heitir Pollý og pabbi Tumi ( þau eru bæði frábærar blöndur af íslenskum og Border Collee).
Við erum á yst á myndinni báðum megin ... Lesa meira
|
|
2009-05-24 -
Milli 50-60 manns mættu í reisugillið hjá okkur þegar viðbyggingin var vígð af Séra Halldóru, sóknarprestinum okkar. Boðið var uppá gúllassúpu, bjór og kaffi. Voru gestirnir á einu máli um að herbergin væru rúmgóð og notaleg.
Takk fyrir komuna, vinir,ættingjar og nágrannar ! Lesa meira
|
|
2009-05-24 -
Fyrsta folaldið fætt ! Vð fengum hestfolald undan Dáð okkar frá Dalbæ og Kletti frá Hvammi, sem er gráskjóttur og mikið hvítt í honum. Hlaut hann nafnið Einstakur, en öll okkar folöld sem fæðast þetta árið, fá nöfn sem hefjast á E :) Lesa meira
|
|
2009-05-24 -
Glæsilegt par og folaldið aðiens fjögurra daga gamalt ! Lesa meira
|
|
2009-05-22 -
Hinn knái knapi Arnór Dan Krstinsson stóð sig eins og hetja sunnudaginn 17.maí í keppninni í fjórgangi uppí Mosfellsbæ. Bæði knapi og graðhesturinn Fögnuður frá Vatnsenda, sem er í eigu okkar hér í Hestheimum, stóðu sig með eindæmum vel. Fögnuður er undan Huginn frá Haga og Gleði frá Egilsá, sem ... Lesa meira
|
|
2009-05-18 -
Aðeins 4 pláss laus á júnínámskeiðið og góð bókun á ágústnámskeiðið. Við erum alsæl hér í Hestheimum þar sem skráning á sumarnámskeiðin fyrir 8-12 ára börn hefur farið afar vel af stað. Spurst hefur út hversu ánægð börnin voru sem sóttu þetta námskeið síðasta sumar. Enda aðstaðan frábær og ... Lesa meira
|
|
2009-05-18 -
Kennsla fellur niður á uppstigningardag, en verður eins og venjulega miðvikudaginn 20.maí klukkan 17:00, 18:00 og 19:00. Minnum þá sem ætla í Knapamerkjanámið að skrá sig tímanlega .) Lesa meira
|
|
2009-05-18 -
Það er frábært að geta sagt frá því að við höfum tekið 6 ný tveggja manna herbergi í notkun hér í Hestheimum. Vinnan við þessa viðbyggingu hefur gengið vonum framar og voru herbergin fyrst leigð út á Kántrýkvöldinu 9. maí. Var það samdóma álit gestanna að þau væru bæði hlýleg ... Lesa meira
|
|
2009-05-18 -
Sjaldan eða aldrei hefur verið jafnmikil dansstemming og tilþrif eins og á síðasta Kántrýkvöldi hér í Hestheimum. Voru milli 50-60 manns sem skemmtu sér konunglega og var það ekki síst að þakka Silfurstjörnum sem komu með rútu af Skaganum ! Haddi kokkur úr Mosfellsbæ eldaði að sinni alkunnu snilli og ... Lesa meira
|
|
2009-05-06 -
Hvolparnir yndislegu sem fæddust 28. apríl eru ekki enn búnir að opna augun, en stækka og dafna með degi hverjum. Enn á ein tík og 1 rakki eftir að finna heimili, allar ábendingar eru vel þegnar !
Þetta er tinnusvört tík sem smá hvítu ívafi og brúnn og svartur rakki, ... Lesa meira
|
|
2009-05-05 -
Nú endurtökum við leikinn og blásum til okkar vinsæla Kántrýkvölds í Hestheimum ! Það verður Happy-hour milli kl. 18-19. Gómsæt grillmáltíð með öllu tilheyrandi til sölu og veigarnar á hagstæðu verði :)
Miðaverð aðeins : 3.900,- sama verð og í fyrra !
Verð eftir kl. 21:00 er ... Lesa meira
|
|
2009-05-04 -
Sunnudaginn 3. maí kom fríður flokkur ættmenna Sigurbjargar Jósíasdóttur með henni til að halda uppá 95 ára afmæli hennar sem er 4.maí.)
Í forsvari fyrir hópinn var Þröstur sonur hennar sem vinnur hjá ferðaskrifstofunni Ísafold, en Þröstur hefur oft komið með hópa hingað í Hestheima. Þáðu þau heimabakaðar hnallþórur ... Lesa meira
|
|
2009-04-29 -
Fimmtudaginn 7. maí kl. 19:30 fer Reiðskóli Hestheima í heimsókn í hestasundlaugina Sundhesta, sem er í Áskoti. Jakob og Addý ætla að vera svo elskuleg að sýni hvernig þau þjálfa hesta í lauginni. Biðjum við foreldra um að skipuleggja bílferðina fyrir nemendur.
Hittumst hress og fróðleiksfús hjá Sundhestum !
Lesa meira
|
|
2009-04-29 -
Við hér í Hestheimum erum svo lánsöm að hafa ráðið til okkar hann Jóa, sem er fiskeldisfræðingur og eldaði svo mikinn fisk að Siggi litli Hjaltested mótmælti :)
Velkominn til starfa, Jói. Lesa meira
|
|
2009-04-29 -
Það fjölgaði um fimm einstaklinga hjá okkur í gær þegar Pollý eignaðist fimm fallega hvolpa, 2 tíkur og 3 rakkar. Þrír eru svartir með hvítu ívafi og 2 brúnir með hvítum flekkum. Búið er að lofa fjórum af þessum fimm á góð heimili.... :) Lesa meira
|
|
2009-04-28 -
Sælir kæru nemendur í Reiðskóla Hestheima og aðstandendur þeirra .)
Nú höfum við hér í Hestheimum í samráði við Barböru Meyer reiðkennara, ákveðið að fara af stað með kennslu í Knapamerkjum 1.
Þetta nám er kennt í samstarfi við háskólann á Hólum og verðum við að greiða þeim ... Lesa meira
|
|
2009-04-27 -
Nú hefur Ísak Freyr, elsta barnið í Hestheimum, tekið þátt í sinni fyrstu keppni á Veislu og gekk vel. Veisla er úr okkar ræktun, undan Glampa frá Vatnsleysu og Gleði, okkar elstu ræktunarhryssu.
Áfram Ísak ! Lesa meira
|
|
2009-04-27 -
Helgina 17.-19. apríl mættu hingað glæsilegir knapar frá Selfossi á námskeið hjá Ísleifi Jónassyni frá Kálfholti. Lauk námskeiðinu með smalakeppni og var sigurvegarinn hylltur ógurlega!
Stungið var uppá að málsókn frá Lögmannastofunni á Selfossi yrðu verðlaunin en spurning hvernig það endaði... .)
Hinn eini sanni Júlli sjarmór frá Selfossi ... Lesa meira
|
|
2009-04-26 -
Við hér í Hestheimum bíðum spennt eftir komu hvolpanna hennar Pollý, kettlinganna hennar Tímoníu, lambanna og síðast en ekki síst allra folaldanna... .)
Það er yndislegt að fylgjast með komu farfuglanna og hlusta á dirrindí og fleiri fögur hljóð... Lesa meira
|
|
2009-04-26 -
Ástkæru nemendur og aðstandendur ! Nú er stundaskráin aftur komin í fastar skorður .)
Kennsla er hafin í knapamerkjakerfinu og gaman að sjá hversu frábærir nemendur eru í Reiðskóla Hestheima. Við erum stolt af ykkur, börn, unglingar og fullorðnir ! Lesa meira
|
|
2009-04-21 -
Við tökum okkur frí á 22. apríl ( síðasta vetrardag) og 23. apríl (sumardaginn fyrsta).
Kennsla verður í dag, þriðjudaginn 21. apríl.
Í næstu viku verður stundaskráin eins og venjulega .) Lesa meira
|
|
2009-04-20 -
Söluhópur Hestheimar bjóða uppá hestakaupasölusýningu, þar sem menn geta farið í hestakaup eins og Íslendinga er siður ! Einnig verður hægt að kaupa og sýna ótamin tryppi. Folaldasala er líka í boði :) Það verður hamingjustund (Happy-Hour), gómsætur matur boðinn til sölu, tónlist og rífandi stemming :9
Skráningargjald ... Lesa meira
|
|
2009-04-16 -
Notaleg gisting í 2-3 manna herbergjum með sérbaði, heitur pottur og hægt að panta nudd. Fallegt umhverfi og heimilislegt andrúmsloft. Einstakt tækifæri til að fá innsýn í daglegt líf í sveitinni, njóta samvistanna við náttúruna og dýrin. Tilboðsverð á gistingu með fullu fæði. Daglega ... Lesa meira
|
|
2009-04-13 -
Hákon og frændur hans, Magnús Pétur og Björn Arnar, fóru í heimsókn uppí Einholt. Þeir voru svo heppnir að fá að halda á 5 ofurfögrum páskaungum sem fæddust á skírdag. Alls ekki slæmt að fá svona flotta og lifandi páskaunga í nágrenni Hestheima. Takk fyrir Fanney og ... Lesa meira
|
|
2009-04-13 -
Hákon Snær missti fyrstu barnatönnina meðan Íris, móðursystir hans var í stuttri heimsókn. Íris býr í Kaupmannahöfn og er að skrifa Bachelorritgerð um Hestheima. Takk fyrir frábæra heimsókn,Íris, det var rigtigt dejligt :) Lesa meira
|
|
2009-04-13 -
Það verður fróðlegt að lesa ritgerðina sem Íris Berg er að skrifa um Hestheima og frábært fyrir okkur að hún skuli hafa valið þetta ritgerðarefni .) Lesa meira
|
|
2009-04-04 -
Við tökum okkur páskafrí í Reiðskóla Hestheima á skírdag, en kennt verður eins og venjulega á miðvikudaginn 8. apríl .)
Hafið þið það nú ljúft í páskafríinu, kæru nemendur, ungir og aldnir !
Lea Helga og Barbara. Lesa meira
|
|
2009-03-29 -
Nú stendur yfir helgarnámskeið hér Hestheimum þar sem fimm hressar konur úr Andvara og Fjárborg, dvelja alla helgina og fá vandaða kennslu hjá hinum þekkta knapa og reiðkennara Ísleifi Jónassyni. ÍSleifur er margreyndur keppnismaður og vann m.a. fjórganginn á síðasta landsmóti á heimaræktaða hestinum Röðli frá Kálfholti.
Eru konurnar ... Lesa meira
|
|
2009-03-17 -
Erum byrjuð að bóka á fullu !
Hestheimar, Ásahreppi (við Hellu) eru í aðeins 50 mínútna keyrslu frá Reykjavík. Frábær aðstaða fyrir hesta og menn í sveitasælunni.
• Vikunámskeið: 22. – 26. júní og 17. – 21. ágúst 2009
• Innifalið: hestar, reiðkennsla, gisting, fæði, afþreying, o.fl.
• Verð kr. ... Lesa meira
|
|
2009-03-17 -
Húrra fyrir ykkur öllum saman, þið voruð frábær í sýningunni um helgina! Við erum stolt af ykkur og það verður spennandi að sjá ykkur þróast áfram í hestamennskunni í Reiðskóla Hestheima .)
Húrra !!! Lesa meira
|
|
2009-03-17 -
Sífellt fleiri nemendur í Reiðskóla Hestheima ! Við erum stolt af því að alltaf bætist við í nemendahópinn hjá okkur hér í Hestheimum. Nú eru um 50 nemendur í reiðskólanum, á öllum aldri og með mismikla reynslu. Allir fá kennslu við sitt hæfi og í nokkrum tilfellum eru ... Lesa meira
|
|
2009-03-17 -
Nú stendur til að hefja kennslu í Knapamerkjunum hér í Hestheimum. Þetta er spennandi nám sem eflaust margir eiga eftir að nýta sér. Lesa meira
|
|
2009-03-17 -
Nú er verið er að sparsla og grunna í viðbyggingunni:) Nú er húsbóndinn í Hestheimum vakinn og sofinn við að undirbúa herbergin undir málningu og húsfreyjan að velja rúm og annað inn í þau. Ekki veitir af þar sem bókun fyrir næsta sumar slær öllu við !
Á ... Lesa meira
|
|
2009-03-10 -
Við erum sem sagt mjög snemma inná, sem er bara fínt, þá getum við séð hin atriðin. Generalæfingin er á fimmtudaginn og er þá mæting klukkan 18 í Rvk. Allir verða þá að vera komnir á hestinn sinn fyrir utan innganginn ekki seinna en klukkan 18.50 !
Ef hvert atriði ... Lesa meira
|
|
2009-03-09 -
Vegna æfingaferðar til Reykjavíkur á miðvikudag og fimmtudag, verður ekki kennsla á þriðjudegi 10. mars fyrir unglingana. Þannig að Bjarki, Brynjar, Hjalti, Bryndís, Sóley og Teresa mæta EKKI Á ÞRIÐJUDAG Í ÞESSARI VIKU :) Lesa meira
|
|
2009-03-09 -
Farf/knapan
miðvikud. 11.3 til Rvk
Far f/hestinn
miðvikud.11.3 til Rvk.
Far f/hestinn
fimmtudag 12.3 til Rvk
Far fyrir hestinn laugard.+sunnudag
AnnaG. Bella Lea Hestheimar Hestheimar ... Lesa meira
|
|
2009-03-09 -
Lesa meira
|
|
2009-03-08 -
Næsta járningarnámskeið verður 14. mars 2009.
Það er ekki að spyrja að því, járningarnámskeiðið sem haldið verður dagana 14. og 15. febrúar er löngu uppselt ! Hafin er skráning á næsta námskeið sem verður um miðbik marsmánaðar. Spurst hefur út hversu góð og lærdómsrík þessi námskeið eru, ekki síst í ... Lesa meira
|
|
2009-03-08 -
Best væri að mæta í svörtum buxum og hvítri skyrtu/peysu.
Skipulag sýningaratriðsins verður svona:
1. atriði: Fimleikar og ásetuæfingar: 4 nemendur
a) Kristjana á Trygg, sýnir ásetuæfingar með hnakk.
b) Thelma verður með fimleikaæfingar á Freydísi, án hnakks
c) Smári og Grétar sýna fimleikaæfingar á eigin ... Lesa meira
|
|
2009-03-08 -
Ágætu Reiðskólanemendur, foreldrar og forráðamenn !
Vegna þátttöku Reiðskóla Hestheima í sýningunni Æskan og hesturinn verða æfingar í Reykjavík fyrir sýningarhópinn á miðvikudags- og fimmtudagskvöld. Vegna þessa færist pollatíminn yfir á þriðjudaginn 10, mars kl. 17:00 og herr- og dömutíminn færist frá miðv.degi yfir á þriðjudaginn 10. mars ... Lesa meira
|
|
2009-03-07 -
Þetta er síðasta sölusýning vetrarins. Nemendur Reiðskóla Hestheima sýna listir sínar í hléi. Kaffiveitingar til sölu.
Skráningargjald er 4.000 á hestinn. Öllum er frjálst að skrá hesta sína. Góð sala var á síðustu sölusýningu og seldust bæði ódýrir og dýrir hestar .)
Upplýsingar í síma: 487-6666 og hestheimar@hestheimar.is
Lesa meira
|
|
2009-03-07 -
Kæru foreldrar/aðstandendur ! :)
nú vantar okkur bílstjóra og líka hestakerrueigendur til að hjálpa til vegna þátttöku Reiðskóla Hestheima í Æskan og hesturinn 14. og 15. mars 2009.
Áhugasamir hafi samband við Leu í síma: 487-6666 og 861-3738.
Lesa meira
|
|
2009-03-07 -
Aukaæfing næsta laugardag
Skrautreiðarhópurinn á að mæta á aukaæfingu á laugardaginn n.k. kl. 17 í Hestheimum.
Það eru:
Anna Guðrún
Bryndís
Bjarki
Hjalti
Helga Sunna
Ómar
Sóley
Teresa
Munum við æfa skrautreið sem þau eiga að sýna a Sunnudaginn 8.mars n.k. í Hestheimum.
Á Sunnudaginn eiga ... Lesa meira
|
|
2009-03-07 -
Jæja nú er farið að styttast í sýninguna og því er mikilvægt að fólk fari að huga að smáatriðunum.
1. Æfingatímar í Víðidalnum: Niðurröðun verður eftirfarandi ... en ég tek það fram að hugsanlega gætu orðið einhverjar breytingar á þessu en vonandi er þetta lokaniðurröðun. Þurfti því að ... Lesa meira
|
|
2009-03-07 -
Æskan og hesturinn 2009
Einn stærsti viðburður hestamennskurnar á hverju ári er stórsýningin Æskan og hesturinn sem haldin er í Reiðhöllinni í Víðidal. Það eru hestamannafélögin Andvari, Fákur, Sörli, Hörður, Gustur, Sóti og Máni sem standa að sýningunni, en árið í ár er 19 sýningarárið.
Eins og nafn sýningarinnar gefur ... Lesa meira
|
|
2009-03-07 -
Kennsla fellur niður miðvikudaginn 11. mars og fimmtudaginn 12. mars vegna æfingaferðar.
Kæru nemendur ! Vð verðum að fella niður kennslu næsta miðvikudag 11. mars og fimmtudag 12. mars vegna æfingarferðar til Reykjavíkur. Við erum að æfa atriðin sem verða á Æskan og hesturinn.
Lesa meira
|
|
2009-03-04 -
Við þurfum alls ekki að kvarta undan kreppunni hér í Hestheimum, mikið meiri bókun í gistingu fyrir vorið og sumarið en í fyrra :) Lesa meira
|
|
2009-02-26 -
Það voru kátir nemendur sem mættu á Öskudaginn í búningunum sínum í tíma í Reiðskóla Hestheima.
Meira að segja fullorðna fólkið lét ekki sitt eftir liggja og Barbara Mayer, skólastjóri var líka í búning !
Nemendur fóru í leiki, Dimmalimm og fleira og veiddu sér nammi á hestbaki :)
Lesa meira
|
|
2009-02-26 -
Lesa meira
|
|
2009-02-26 -
Fullorðnir nemendur mættu líka í búningum í Reiðskóla Hestheima. Að öðrum ólöstuðum var Sjöfn Þórarinsdóttir frá Baugsstöðum 3, sú sem sló í gegn .) Lesa meira
|
|
2009-02-26 -
Hjónin Margrét og Jóhann Helgi frá Vatnsholti eru fyrstu hjónin sem mæta saman í Reiðskóla Hestheima. Þau tóku sig vel út og var dembt í sýningaræfingar .) Hjartanlega velkomin bæði tvö !
Á myndinni er Margrét í forgrunni en Jóhann Helgi aftast... Lesa meira
|
|
2009-02-26 -
Hér er glæsileg mynd af Alexander Breiðfjörð eða Zorro ! Það er amma hans, Sigga á Grund sem heldur í Vaðal en Sigga er líka nemandi í Reiðskóla Hestheima.
Flott saman :) Lesa meira
|
|
2009-02-22 -
Við í Hestheimum vorum afar stolt af flottu reiðskólanemendunum okkar á laugardaginn, þegar Rangárhöllin var vígð ! Allir voru svo fínir í nýju peysunum, hestarnir svo hreinir og flottir. Nemendur voru líka ótrúlega þolinmóðir, þótt það yrði svona mikil seinkun á dagskránni ! Eina sem klikkaði, voru ... Lesa meira
|
|
2009-02-19 -
Konurnar sex sem mættu á námskeið hér í Hestheimum voru algerar hetjur! Þær gerðu ótrúlegustu hluti og yfirunnu hræðsluna sem hafði plagað þær. Sumar ætla að halda áfram að læra og mæta í Reiðskóla Hestheima á miðvikudögum kl. 18:00. Þær voru mjög ánægðar með kennsluna hjá Barböru Meyer, eins ... Lesa meira
|
|
2009-02-18 -
Vaskir menn sem smíða, leggja rafmagn og pípur sjá til þess að allt er á undan áætlun í viðbyggingunni í Hestheimum ! Smiðirnir eru Einar Páll úr Hveragerði ásamt barnabörnum og Trausti bróðir Einars úr Einholti. Þettar er fyrirtækið Kvistar ehf. Rafmagnið sér Fossraf á Hellu um en ... Lesa meira
|
|
2009-02-18 -
Reiðskóli Hestheima verður öflugri með degi hverjum. Laugardaginn 21.2. sýna nemendur frá Reiðskólanum við opnun Rangárhallarinnar. Einnig verður reiðskólasýning í hléi sölusýningarinnar í Hestheimum sunnudaginn 8. Mars n.k.
Ennfremur munu nemendur Reiðskólans sýna fjórum sinnum á Æskan og hesturinn í Víðidal um miðjan marsmánuð. Allt að gerast ... Lesa meira
|
|
2009-02-18 -
Næsta Laugardag , þann 21.2.2009 verður Rangárhöllin formlega opnuð. Reiðskóla Hestheima hefur verið boðið að vera með sýningaratriði. Þar sem bara örfáir dagar eru til stefnu, þarf að æfa aukalega fyrir þetta. Velja þarf nemendur sem taka þátt að þessu sinni. Við verðum með tvo mismunandi ... Lesa meira
|
|
2009-02-04 -
Hestheimar bjóða uppá árangursríkt helgarreiðnámskeið 6. – 8. mars 2009.
Kennari verður Tómas Snorrason, sem er þekktur knapi með reiðkennararéttindi og kennslureynslu.
Megináherslan verður lögð á alhliða þjálfun reiðhestsins og samspil knapa og hests, útfrá forsendum hestsins.
Takmarkaður fjöldi þáttakenda kemst að á þetta ... Lesa meira
|
|
2009-02-01 -
Systir húsfreyjunnar á Hestheimum, 'Iris Berg er að skrifa lokaritgerð sína við háskólann í Kaupmannahöfn ásamt félaga sínum Dennis Lolk Lund. Mun ritgerðin fjalla um hvernig best sé fyrir Hestheima að laða til sín fleiri þýska ferðamenn.
Fyrir áhugasama er má lesa nánar á ensku hér að neðan:
Lesa meira
|
|
2009-02-01 -
Nú er Barbara Meyer búin að mennta sig enn meira í Þýskalandi og mætir fersk og fróðari aftur til kennslu. Kennt verður á þriðjudögum ( nýr tími kl. 18:00), miðvikudögum kl. 17:00 og 18:00 og fimmtudögum kl. 17:00 og 18:00, eins og verið hefur.
Það er býsna margt spennandi í ... Lesa meira
|
|
2009-02-01 -
Enn einni velheppnaðri sölusýningu lokið í Hestheimum. Voru sýnendur ánægðir með söluna og voru margir góðir hestar sýndir á vitrænu verði! Fengu færri en vildu ódýrasta hest sýningarinnar sem var fínn töltari á kreppuverði :)
Næsta sölusýning verður sunnudaginn 1. mars kl. 14:00 og er eins og alltaf, öllum ... Lesa meira
|
|
2009-01-31 -
Reiðskóli Hestheima býður uppá tíma fyrir konur á miðvikudögum kl. 18:00 og fimmtudögum kl. 19:00. Takmarkaður fjöldi nemenda kemst að í hvern tíma. Nú er tækifærið fyrir þig að skrá þig í reiðtíma þar sem kennslan er frábær og öll aðstaðan til fyrirmyndar !
Nánari upplýsingar í síma: 487-6666 og ... Lesa meira
|
|
2009-01-31 -
Lesa meira
|
|
2009-01-26 -
Öllum er frjálst að skrá hesta og sýna á sölusýningum í Hestheimum. Skráningargjaldið er kr. 4.000,- á hest, tekið er við skráningum fram á fimmtudagskvöld, þegar sýnt er á sunnudegi.
Banki: 586-26-73040, kennitala: 700807-3040.
Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að sýningarnar verða haldnar á laugardag 31. jan.( hægt að ... Lesa meira
|
|
2009-01-20 -
Langflestir af söluhestunum verða teknir upp og sýndir á vef Hestafrétta. Skráningargjald er 8.000 á hest með video,
en 3000 krónur á hest ef hann fer ekki á video
Hægt verður að kaupa heilbrigðisskoðun á staðnum á seldum hestum strax.
Nánari upplýsingar og skráningar í síma: 487-6666 , 8939966 og ... Lesa meira
|
|
2009-01-19 -
Það verður smá breyting hjá okkur í vikunni.
ENGIN KENNSLA verður fimmtudag 22.1.2009 en kennt verður Þriðjudag 20.1.2009 í staðin!
Vetrarfrí verður í reiðskólanum í vikunni þar á eftir og fellur kennsla niður báða daga.
Engin kennsla sem sagt miðvikudaginn 28.1.2009 og fimmtudaginn 29.1.2009!
Lesa meira
|
|
2009-01-16 -
Nýtt járningarnámskeið í Hestheimum sunnudaginn 15. febrúar 2009 og hefst kl. 10:00.
Nú er grunnjárningarnámskeiðunum tveimur lokið og vöktu þau mikla ánægju nemenda. Guðmundur Guðmundsson, hinn þekkti járningarmaður kenndi af mikilli þekkingu og áhuga eins og honum einum er lagið.
Innifalið er sýnikennsla á 2-3 hestum, kaffi og ... Lesa meira
|
|
2009-01-14 -
Vikulegir reiðtímar í boði fyrir polla í Reiðskóla Hestheima. Kennari er Barbara Meyer sem er með mikla kennslu- og keppnisreynslu.
Endilega hafðu samband í síma 487*6666 Lesa meira
|
|
2009-01-09 -
Við brosum útað eyrum í Hestheimum þar sem vinnan við nýju herbergin ganga svo vel ! Lesa meira
|
|
2009-01-09 -
Spennandi grár, 13 vetra hestur til sölu.
sjá nánar undir hestar til sölu :) Lesa meira
|
|
2009-01-08 -
N'u er grunnjárningarnámskeiðunum tveimur lokið og vöktu þau mikla ánægju nemenda. Guðmundur kenndi af mikilli þekkingu og áhuga eins og honum einum er lagið.
Einn nemendanna fekk meira að segja að taka kettling með sér heim !
Innifalið er sýnikennsla á 2-3 hestum, kaffi og heimabakað meðlæti, ásamt ... Lesa meira
|
|
2009-01-04 -
Þrymur frá Flekkudal, hágengur alhliða gæðingur.
sjá nánar undir hestar til sölu :) Lesa meira
|
|
2009-01-03 -
Hesta-jól 2008 fóru fram 28. desember í Hestheimum. Sýningin gekk afar vel, um 150 gestir mættu á svæðið og krakkarnir stóðu sig með ólíkindum vel! Við í Hestheimum og Barbara Meyer, skólastjóri erum rosalega stolt af krökkunum "okkar" og viljum þakka öllum fyrir frábæra frammistöðu. Nemendur voru ... Lesa meira
|
|
2009-01-02 -
Uppselt er á þetta námskeið...
Gífurlega góð viðbrögð við auglýsingu um námskeiðið ! :)
Hinn þekkti knapi og reiðkennari Sigurður Sigurðarson mun kenna 1. helgina í Janúar 2008. Uppbókað er á þetta námskeið og mun Sigurður kenna á öðru helgarnámskeiði í Hestheimum einnig.
Þetta er framúrskarandi tækifæri til að ... Lesa meira
|
|
2008-12-19 -
Hesta-Jól !
Jólahátíð í Hestheimum,
Sunnudaginn 28.12.2008, kl. 15:00
Reiðskóli Hestheima mun standa fyrir Hesta-Jóla-hátíð.
Nemendur skólans verða með sýningu á hestum.
Húsið verður opnað klukkan 14.00.
Sýningin hefst stundvíslega klukkan 15.00!
Kaffihlaðborð að hætti Leu Helgu.
Jólaball að lokinni sýningu.
Lesa meira
|
|
2008-12-18 -
Smiðirnir í Kvistum ehf. vinna eins og berserkir í Hestheimum og nú er viðbyggingin að verða fokheld ! Gler og einangrun koma á staðinn í dag og þetta æðir bókstaflega áfram !
Flott hjá ykkur strákar ! Lesa meira
|
|
2008-12-18 -
Nemendur Reiðskólans eru á aldrinum 5-70 ára ! Skipt er í hópa eftir aldri, getu og áhersluatriðum ! þú ert velkomin/n með í hóp nemenda!
Tilvalin jólagjöf fyrir hestafólk ! ... Lesa meira
|
|
2008-12-17 -
Fallegu kettlingarnir okkar hafa allir fengið ný heimili. Þetta eru algerar dúllur og óskaplega fallegir. Sunneva, heimasætan á bænum á að fá að eiga einn, sem heitir því þjóðlega nafni, Snælda :) Lesa meira
|
|
2008-12-08 -
Frábær stemming var á föndurkvöldi í Reiðskólanum. Góð mæting var og nemendur og foreldrar föndruðu af list ! Málað var á krukkur, skeifur skreyttar, músastigar búnir til og jólakort og fleira. Áður en föndrið hófst, snæddu allir grjónagraut og heimabakað brauð saman. Á eftir var boðið uppá kakó og ... Lesa meira
|
|
2008-12-07 -
Kvistar er samheiti fyrir 4 frækna smiði sem láta hendur og hamra standa fram úr ermum ! Við stefnum að því að flagga næsta föstudag þegar síðasta sperran verður reist !
Þetta er lagið strákar ! Lesa meira
|
|
2008-12-07 -
Hér kemur mynd að smiðunum okkar, Trausta í Einholti, Einari og Hákoni sem saman mynda fyrirtækið: Kvistar ehf. Lesa meira
|
|
2008-12-07 -
Hér er önnur mynd af duglegum og glæsilegum föndrunum ! Lesa meira
|
|
2008-12-07 -
Flottar og laghentar stúlkur föndra í Hestheimum ! Lesa meira
|
|
2008-12-07 -
Lokið er við að skreyta öll húsin í Hestheimum, hátt og lágt, að utan sem innan ! Meira að segja hesthúsið og sönghellirinn hafa verið skreytt fagurlega .) Lesa meira
|
|
2008-11-31 -
Guðjón Árnason hjá GÁ-byggingum kom ásamt starfsmanni til að aðstoða þegar steypt var og gekk það eins og í sögu :9
Nú er Trausti nágranni okkar í Einholti og hans menn hjá Kvistum að smíða veggjaeiningar. Það væsir ekki um þá því þeir fá að nota fjósið á Sumarliðabæ ... Lesa meira
|
|
2008-11-27 -
Mánudaginn 24. nóvember dó Eyrnaslapi, fallega, stóra og hvíta kanínan okkar. Hann var orðinn gamall og lúinn. Börnin í Hestheimum sakna hans mikið og langar í aðra kanínu... Lesa meira
|
|
2008-11-26 -
Nú er kennt í 3 tíma á fimmtudögum vegna mikillar aðsóknar. Þann 4. desember kl. 19:00 föndrum við saman að kennslu lokinni og borðum grjónagraut og heimabakað brauð. Þetta verður notaleg stund sem við munum eiga saman. Sunnudagin 28. desember verða svo HESTA-JÓL, jólaskemmtun og reiðsýning nemenda. ... Lesa meira
|
|
2008-11-24 -
Við bjóðum aftur upp á okkar vinsælu helgarnámskeið! Hópurinn velur sér helgi, reiðkennara (erum með 11 af bestu reiðkennurum landsins á skrá hjá okkur !) - og hvað hópurinn vill að lögð verði áhersla á í kennslunni.
Dekrað verður við gestina í mat og öllum aðbúnaði. Gisting er ... Lesa meira
|
|
2008-11-22 -
Í Hestheimum, Ásahreppi (aðeins 50 mín. akstur frá Rvk.) bjóðum við uppá frábæra aðstöðu fyrir hvata- og óvissuferðir. Aðstaða til funda- og ráðstefnuhalds er góð.
Í friðsæld og fegurð sveitarinnar næst hámarksárangur þar sem
næði er gott og ekkert sem glepur.
Hópurinn helst vel saman, streitan ... Lesa meira
|
|
2008-11-16 -
Við erum nú þegar byrjuð að bóka hópa í lengri hestaferðir næsta sumar. 4 hópar hafa þegar ákveðið sig, þannig að nú er um að gera að vera skipulagður og panta tímanlega ! :) Lesa meira
|
|
2008-11-11 -
Ekkert slór í Hestheimum ! Nú er búið að steypa í sökklana á viðbygginguna og allt á fullu ! Guðjón og Egill sáu um þetta. Það það er sko ekkert hik á þessum mönnum og lítið mál að snara fram einni viðbyggingu eða svo :)
Þar verða 6 tveggja ... Lesa meira
|
|
2008-11-05 -
Undanfarið hefur verið mikið af erlendum kaupmönnum á Íslandi. Alltaf gott úrval hesta á söluskrá hjá okkur hér í Hestheimum. Endilega hafðu samband og fáðu að prófa hesta inni í reiðhöllinni okkar í ró og næði :) Lesa meira
|
|
2008-11-05 -
Mamman, hún Tímonía er óskaplega vitur og falleg kisa. Kettlingarnir sem hún átti í sumar voru það líka og voru ýmist tví- eða þrílitir,algerar dúllur .) Nú hefur Sunneva, heimasætan á bænum, fengið leyfi til að velja sér einn kettling úr hópnum !
Lesa meira
|
|
2008-11-02 -
Sunnudaginn 2. nóvember var haldin stórskemmtileg folaldasýning hér í Hestheimum.
Alls voru 28 folöld skráð á folaldasýninguna og fjöldi manns sem kom til að sjá þau.
Gunnar Arnason dæmdi af alkunnri snilld og hafði á orði að folöldin væru óvenju góð , öll í góðu meðallagi og mörg ... Lesa meira
|
|
2008-10-22 -
Frábær nýjung í boði !
Hestheimar bjóða í vetur uppá þá nýjung að fólk getur pantað sér fastan tíma í reiðhöllinni og fengið reiðkennslu um leið hjá hinum virta reiðkennara Barböru Meyer. Þetta er frábær leið til að læra meira, markvisst allan veturinn. Nemendur geta annað hvort mætt með ... Lesa meira
|
|
2008-10-21 -
Meiriháttar árangur náðist hjá konunum sem voru á námskeiði 17.- 19.október s.l. Kennari var Barbara Meyer sem hefur m.a. kennt á Hólum við reiðkennaradeildina þar og stóð hún sig með prýði og vakti lukku meðal nemendanna. Voru konurnar sammála um að nauðsynlegt væri að halda framhaldsnámsskeið og byggja ofan á ... Lesa meira
|
|
2008-10-09 -
Djarfur er 5 vetra mósóttur gæðingur sem gleður augu áhorfenda ! Lítið á hestar til sölu til að fá allar nánari upplýsingar um þennan frábæra hest.
Djarfur er seldur ! Lesa meira
|
|
2008-09-17 -
Ragnheiður Skúladóttir er matráðskonan í Hestheimum sem hristir fram úr erminni dýrindis máltíðir og nýbakaðar kökur daglega :) Lesa meira
|
|
2008-09-11 -
Dagana 5-6. september kom hópur þýskra ferðamanna í Hestheima með Ísafold Travel. Ferðaskrifstofan á 9 sérútbúna jeppa sem heita Ísak, eins og frumburðurinn á bænum. Auðvitað var smellt mynd af nöfnunum ! :) Lesa meira
|
|
2008-09-08 -
Laugardaginn 6.sept., var Kántrýkvöld í Hestheimum. Það hófst kl. 18-19 með Happy Hour,svo var glæsilegt steikarhlaðborð í kúrekastíl, línudanskennsla og Ómar Diðriks og félagar héldu uppi stuðinu allt kvöldið. Hópur gestanna mættu ríðandi og geymdu fáka sína í hesthúsinu yfir nótt.
Verðlaun fyrir frumlegasta búninginn fekk Barbara Mayer frá Ásmúla ... Lesa meira
|
|
2008-07-27 -
Nú er reiðnámskeiðinu lokið hjá okkur. Það tókst afar vel og allir fóru glaðir heim. Þetta voru hörkukrakkar sem stóðu sig eins og hetjur.
Barbara Meyer og Tómas Snorrason, bæði réttindakennarar frá Hólum, kenndu á þessu reiðnámskeiði. Einnig voru grunnskólakennararnir Lea Helga Ólafsdóttir og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir ... Lesa meira
|
|
2008-07-26 -
Hér í Hestheimum fæddust nýverið ofurfallegir kettlingar, 2 fress og 2 læður. Þetta eru skynsamir og fagrir kettlingar, 2 eru tvílitir, gulbröndóttir og 2 eru þrílitir, hvítir, brúnir og svartir. Nú eru allir kettlingarnir farnir og ekki laust við að börnin á bænum sakni þeirra, en svona gengur ... Lesa meira
|
|
2008-07-23 -
Við höfum fengið 2 hestfolöld, annað brúnskjótt, heitir Hamar, undan Kletti frá Hvammi, hitt rauðblesótt, heitir Herra, undan Aroni frá Strandarhöfðiog Línu. Klettsonurinn er undan Veislu sem er undan Gleði, okkar fyrstu og elstu ræktunarhryssu, sem hefur gefið okkur 11 folöld
:) Við erum svo lánsöm að ... Lesa meira
|
|
2008-06-01 -
Þessa helgi fengum við 2 góða hópa í hvataferðir til okkar í Hestheima, tæplega 100 manns frá Marel sem snæddi grillmat og dansaði fram eftir kvöldi og tæplega 50 manns frá Ístak, sem fór á hestbak og lærði línudans.
Takk fyrir komuna og sjáumst hress á nýjan leik ! Lesa meira
|
|
2008-06-01 -
Í maí fengum við um 170 hressa 10. bekkinga í Hestheima. Þetta voru ungmenni úr Setbergs- Rima- og Fellaskóla sem fengu gistingu og morgunverð í Hestheimum.
Krakkarnir úr Setbergsskóla voru hér líka í kvöldverð og fóru á hestbak.
Glæsilegir hópar og gaman að fá þá hingað í sveitina.
Takk fyrir ... Lesa meira
|
|
2008-05-07 -
Þau stóðu sig eins og hetjur í eldhúsinu, Haddí kokkur úr Mosó og Sigga Bogga, mamma Leu á Kántrýkvöldinu.
Takk fyrir ! Lesa meira
|
|
2008-05-05 -
Kántrýkvöldið heppnaðist sérstaklega vel. Var það mál manna að hljómsveitin: Ómar Didriksson og sveitasynir hefði staðið sig sérlega vel. Maturinn hans Hadda sló í gegn hjá gestunum.
Reiðsýningin frá stúlkunum í Geysi var afar vel æfð og glæsileg,enda voru þær klappaðar upp !
Næsta kántrýkvöld verður laugardaginn ... Lesa meira
|
|
2008-04-30 -
Þann 29. apríl fæddist fyrsta lambið hér í Hestheimum. Það var lambadrottning, óvenjumyndarlegt lamb undan gemsa. Síðar um daginn fæddist annað lamb, lambhrútur. Lesa meira
|
|
2008-04-30 -
Níu hressir knapar frá Selfossi og nágrenni mættu á reiðnámskeið 18.-20. apríl. Kennari var hinn þekkti keppnismaður,Sigurður Vignir Matthíasson.
Var almenn ánægja með kennsluna, matinn og alla aðstöðu hjá nemendunum. Ekki spillti veðrið heldur fyrir, það var meira að segja hægt að borða útivið :)
Takk fyrir frábæra samveru ... Lesa meira
|
|
2008-04-09 -
Smárafélagar í Hestheimum ! Helgina 11.-13. apríl var kraftmikill 35 manna hópur ungra knapa og fylgdarmanna frá Hestamannafélaginu Smára á reiðnámskeið hjá hinum þekkta knapa og keppnismanni Sigurði Matthíassyni.
Það var líf og fjör í Hestheimum þessa helgi ( eins og allar helgar :)) og gaman að fá þessi ... Lesa meira
|
|
2008-04-07 -
Harðarkrakkar voru á reiðnámsskeiði í Hestheimum 4.-6. apríl! Kennari þeirra var Stefán 'Agústsson reiðkennari.
Þetta var frábær hópur ungra knapa úr Herði og stóðu þeir sig með prýði í náminu og allri umgengni. Takk fyrir komuna Harðarfélagar ! Lesa meira
|
|
2008-02-06 -
Á námskeiðinu: Í byrjun vetrar var Guðmundur Guðmundsson með sýnikennslu í járningum, sem mæltist vel fyrir og fengu nemendur yfirgripsmikla fræðslu um þetta efni. Lesa meira
|
|
0000-00-00 -
Lesa meira
|